Ég er alls ekki vanur að skoða póst sem Aþena (þrællinn minn fyrir norðan) merkir sem SPAM (þ. e. ruslpóst). Þó fannst mér eitthvað undarlegt við titilinn á einum skilaboðunum, svo ég mátti til með að forvitnast ögn.
Í hnotskurn snerist málið um dreifingu á netföngum gegn gjaldi. Viðkomandi bauð mér afrit af gagnagrunni sem inniheldur (að sögn) um 2.7 milljónir netfanga breskra ríkisborgara. Ekki nóg með það, þá kveðst þessi aðili hafa safnað öllum þessum netföngum á einum mánuði, eða á bilini júlí-ágúst 2004.
Býsna vel af sér vikið, ef satt er! Nú, öll þessi ósköp kosta aðeins $270 (ég geri ráð fyrir að þetta sé í bandarískum dölum, því annað er ekki tekið fram), eða rétt um 19.000 kr.
Ég hef svo sem heyrt og lesið um ámóta lista, og þeir gangi kaupum og sölu milli fyrirtækjanna víðsvegar um heiminn – því er þetta ekki sérlega merkilegt í sjálfu sér, en þessi ákveðna setning fannst mér fremur hjákátleg og alveg eyðileggja annars ágætlega skrifaðan póst.

„… as a proof of their geographical origin end with ‘.co.uk’,which stands for the United Kingdom“.

Þetta er svona ámóta og ef sölumaður segir þér að tölvan sé amerísk bara af því að á henni er límmiði sem á stendur „www.microsoft.com“ (America, Japan… It’s all made in Taiwan!). :P