desember 2003


Ég er búinn að vera óhemju latur frá því í gær, sofið, borðað og lesið til skiptis – en aðallega sofið. Einhver sem kann ráð við svona letiköstum, endilega að hafa samband!

Mér áskotnaðist ágætis safn með Thin Lizzy nýverið – inniheldur allar plötur/diska gefna út á árunum 1971 til 1983. Venjulega hef ég fussað og sveiað yfir þeim (eftir að hafa heyrt misþyrmingar þeirra á írskri tónlist, sbr. „Whiskey in the jar“), en þetta virðast vera ágætis grey. Mátulega rokkaðir fyrir þessa tónlist sem þeir spila.

Ég leit á Police Academy í gær – var næstum búinn að gleyma þvílík snilld þessar myndir eru. Note to self: Verð að athuga hvort hægt sé að fá safnið á DVD einhvern daginn.

Upp er runninn jóladagur, kyrrð og ró ríkir yfir bænum, og ég át eins og svín í gærkvöldi (þ.e. ekki með sömu tilburðum, heldur á ég við magnið er ég lét ofan í mig). Ég get ekki að því gert, en mikið skelfing þykir mér þetta allt hvunndagslegt – engin jólastemmning hvernig sem á því stendur. Þrátt fyrir það skemmti ég mér alveg ágætlega í gær og hafði það bara virkilega notalegt.

Kærar þakkir fyrir mig, og hafið það sem allra best!

Dagurinn er varla byrjaður en samt er ég búinn að fá meira en nóg. Ég staulaðist óvenju snemma í bælið í gærkvöldi, og hlakkaði svo til að vakna hress og endurnærður um þetta leyti. En nei, að sjálfsögðu gátu guðirnir ekki unnt mér þess, heldur vaknaði ég klukkan hálf-fjögur í morgun og lá og bylti mér fram til sex – en þá gafst ég upp og hitaði mér kaffi.

Rétt um tveggja stiga hiti hérna, örlítil rigning og enn minni gola. Ekki mikið um að vera í Morgunblaðinu. Rakst hérna á fremur hjákátlega fyrirsögn frá því í fyrradag, en hún hljóðar svo: „Dó en lifði það af“. Takk fyrir – það er ekki alltaf sem fólk lifir slíkar raunir af. Hins vegar var þá átt við að einhver náungi í Lettlandi hafi fundist meðvitundarlaus af áfengisdrykkju, og alkóhólmagnið í blóði hans vel yfir þeim mörkum sem flestir aðrir hafa gefið upp öndina við.

Hvað sem því líður, þá er víst Þorláksmessa í dag, eða „þolllákur“ eins og sumir segja. Ef mér skjátlast ekki, þá eru flestar, ef ekki allar verslanir í miðbænum (Akureyri) opnar til miðnættis – svo það er enn tími til að kaupa síðustu jólagjafirnar. Ætli maður líti ekki út í dag og fari svo á Kaffi Karólínu og fái sér Kisukaffi (bara muna að fara varlega svo ekki fari eins og fyrir fyrrnefndum letta). Mæli með því!

Undanfarna fjóra til fimm daga hafa mér borist ógrynnin öll af ruslpósti. Þá ekki einungis þessum sígilda ruslpósti, eða „spam“ að hætti ameríkanans, heldur og einnig póstur með viðhengi smituðum af ormi. Ormur þessi er m.a. nefndur Sefex, en hann dreifir sér í HTML viðhengjum tölvupósts, og þaðan ræsir hann annað forrit og gerir einhvern óskunda.

Mér brá illilega í brún þegar ég sótti póstinn minn einn morguninn, en þar á meðal voru boð þess efnis að netfang mitt hjá Iceware.net væri runnið úr gildi – einnig virtust þessi skilaboð koma frá info@iceware.net við fyrstu sýn – sem kom mér á óvart þar sem ég hýsi lénið Iceware.net og viðkomandi póst- og vefþjóna sjálfur. Til allrar lukku er allur póstur til og frá áðurnefndu léni skannaður af Norton Antivirus, svo hér hafa enginn óhöpp orðið (enn sem komið er!).

Allir að vera á varðbergi gagnvart þessum óþverra, og endilega að kynna sér þetta ögn betur á vefsíðu Symantec. Þar má einnig lesa sér til um hvernig eigi að bregðast við smiti og hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir það. Mjamm, svo er nú það.

En hvað sem ormum og öðrum sníkjudýrum líður, þá er ég hérna í hörkustuði að hlusta á Ríó Tríó og klára jólahreingerningarnar í tölvunni. Enn ekkert jólaskap, „en það reddast eina ferð á ný“.

Jæja, þessar vefdagbækur eru alls ekki sem verstar, eftir allt saman. Ágætis fyrirbrigði til að skrá undarlega þankaganga sína, hmm.
Ég er búinn að finna jólatónlist ársins – nágrannarnir hafa ekki þurft að kvarta, þökk sé notkun heyrnatólanna! Svo, já. Ég gróf upp „gamlan“ disk (útgefinn 1997), „A Tenor’s Christmas“, en þar fer sjálfur Plácido Domingo með aðalhlutverkið. Get ekki sagt að ég sé ýkja hrifinn af óperum, en hvernig þessir óperusöngvarar fara með svona jólalög er alveg frábært!

Mér varð litið á dagatalið fyrr í morgun, og uppgötvaði mér til mikillar skelfingar að það er 21. og ég hef enn ekki byrjað að pakka inn jólagjöfunum. Slæm frammistaða, ég veit. Get ekki sagt að það sé kominn neinn raunverulegur jólahugur í mig, en vonandi tekst meistara Domingo að bæta úr því.

Eftirfarandi síða »