Jóla hvað?!
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, Folk.is sarpurPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Jæja, þessar vefdagbækur eru alls ekki sem verstar, eftir allt saman. Ágætis fyrirbrigði til að skrá undarlega þankaganga sína, hmm.
Ég er búinn að finna jólatónlist ársins – nágrannarnir hafa ekki þurft að kvarta, þökk sé notkun heyrnatólanna! Svo, já. Ég gróf upp „gamlan„ disk (útgefinn 1997), „A Tenor’s Christmas„, en þar fer sjálfur Plácido Domingo með aðalhlutverkið. Get ekki sagt að ég sé ýkja hrifinn af óperum, en hvernig þessir óperusöngvarar fara með svona jólalög er alveg frábært!
Mér varð litið á dagatalið fyrr í morgun, og uppgötvaði mér til mikillar skelfingar að það er 21. og ég hef enn ekki byrjað að pakka inn jólagjöfunum. Slæm frammistaða, ég veit. Get ekki sagt að það sé kominn neinn raunverulegur jólahugur í mig, en vonandi tekst meistara Domingo að bæta úr því.