Ormar og ruslpóstur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, Folk.is sarpurPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Undanfarna fjóra til fimm daga hafa mér borist ógrynnin öll af ruslpósti. Þá ekki einungis þessum sígilda ruslpósti, eða „spam„ að hætti ameríkanans, heldur og einnig póstur með viðhengi smituðum af ormi. Ormur þessi er m.a. nefndur Sefex, en hann dreifir sér í HTML viðhengjum tölvupósts, og þaðan ræsir hann annað forrit og gerir einhvern óskunda.
Mér brá illilega í brún þegar ég sótti póstinn minn einn morguninn, en þar á meðal voru boð þess efnis að netfang mitt hjá Iceware.net væri runnið úr gildi – einnig virtust þessi skilaboð koma frá info@iceware.net við fyrstu sýn – sem kom mér á óvart þar sem ég hýsi lénið Iceware.net og viðkomandi póst- og vefþjóna sjálfur. Til allrar lukku er allur póstur til og frá áðurnefndu léni skannaður af Norton Antivirus, svo hér hafa enginn óhöpp orðið (enn sem komið er!).
Allir að vera á varðbergi gagnvart þessum óþverra, og endilega að kynna sér þetta ögn betur á vefsíðu Symantec. Þar má einnig lesa sér til um hvernig eigi að bregðast við smiti og hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir það. Mjamm, svo er nú það.
En hvað sem ormum og öðrum sníkjudýrum líður, þá er ég hérna í hörkustuði að hlusta á Ríó Tríó og klára jólahreingerningarnar í tölvunni. Enn ekkert jólaskap, „en það reddast eina ferð á ný„.