Ég er búinn að vera óhemju latur frá því í gær, sofið, borðað og lesið til skiptis – en aðallega sofið. Einhver sem kann ráð við svona letiköstum, endilega að hafa samband!

Mér áskotnaðist ágætis safn með Thin Lizzy nýverið – inniheldur allar plötur/diska gefna út á árunum 1971 til 1983. Venjulega hef ég fussað og sveiað yfir þeim (eftir að hafa heyrt misþyrmingar þeirra á írskri tónlist, sbr. „Whiskey in the jar„), en þetta virðast vera ágætis grey. Mátulega rokkaðir fyrir þessa tónlist sem þeir spila.

Ég leit á Police Academy í gær – var næstum búinn að gleyma þvílík snilld þessar myndir eru. Note to self: Verð að athuga hvort hægt sé að fá safnið á DVD einhvern daginn.