Þetta er alveg hreint með eindæmum. Að öllu jöfnu er svo yfirdrifið nóg af alls kyns stöðlum um flesta hluti, en svo eru ýmist engir eða þá svo óljósir að enginn fer eftir þeim.
Ég tók eftir því nýverið þegar ég var að aðlaga forrit sem ég gerði fyrst í Windows (byrjaði með Visual C++ frá Microsoft, en sneið síðan allt að GCC) að Linux stýrikerfum að þeir „compilers„ eða þýðingarforrit sem styðja svokallað „inline assembly„ á annað borð eru ekki í neinu samræmi. Það sem að ég skrifaði fyrir Visual C++ „compilerinn„ varð ég að endurskrifa frá grunni fyrir GCC. Ekki nóg með það, heldur þurfti ég einnig að endurskrifa allan assembly kóðann sem studdist vid svokallað SIMD sem virkaði fínt í GCC í Windows, fyrir GCC í Linux.
Þegar allt kom til alls, var engu líkari en ég hefði verið að skrifa sama forritið frá grunni fyrir fjögur alls ólík stýrikerfi… Þetta er bara asnalegt!#@
Kvörtunarstund lokið að sinni.
desember 2003
Mánaðarlegur sarpur
21. des. 2003
Staðlar – hvað er nú það?
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, Folk.is sarpurPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Þessi færsla hefur verið lesin 463 sinnum
21. des. 2003
Disa-blogg í gagnið?
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, Folk.is sarpurPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Varla. Skráði mig hérna fyrst og fremst til að finna út hvernig ætti að nota myndir til að hjálpa einhverjum (skammarlegt hvað hjálparkerfið hérna er fátæklegt af upplýsingum) – en jæja, það er aldrei að vita hvað manni dettur í hug.
Jólamyndin í ár hlýtur að vera Walt Disney’s „Robin Hood„ (Hrói Höttur) frá árinu 1973. Uppáhalds teiknimynd mín til fjölda ára, og er nýbúinn að sjá hana endur-útgefna á DVD (óbreytt að öllu, að ég held – þó eru myndgæðin alveg ágæt). Mæli með henni!
Skömmin hún Ingibjörg lét mig ekki vita af jólasýningu SA (Skautafélag Akureyrar) svo ég missti af því. Þetta nær ekki nokkurri átt, ha.
Þessi færsla hefur verið lesin 436 sinnum