2004


Simply put, this newly discovered vulnerability enables malicious web sites to hi-jack any named browser window (including „popups„) and replace the content with their own. An example of how it works:

A malicious web site is open in one browser window. Now, you open some trusted web site in a new window. When the trusted web site opens a popup window, the malicious web site hi-jacks it and displays content of their own (perhaps a silent installer of some sort). The possibilities are countless. The solution is quite simple, however; don’t browse untrusted sites at the same time as trusted ones. ;)

Visit Secunia’s site for the original report.

… has been cancelled.
Nay, it is not a movie, a play, song or a fiction, but precisely what the name suggests. The human race disappoints me. Do you like chocolate? I do.

It has been a fairly normal day for me. With it’s share of reading nearly incomprehensible manuals, writing thousands of lines of utterly fathomless code, listening to the splendid music of Australia (thanks to Emmy), the day today has been rather dull. The Republic of Diluculo was established in an indescribable state of the mind, and later joined the Magical Realm of Siren, (Siren is the all-knowing, all-powerful world ruler, for those of you who don’t pay attention to politics).

My experiments with music continue. Recently I decided to have a go at the MTV charts, and so far I’ve found out that Anastacia is acceptable, Aventura is fine every once in a while, Breaking Benjamin sounds like every other band out there, Brujeria has only made one decent song, Chevelle and Crossfade are dull, Green Day seem decent and Keane is quite nice. ‘Course, that’s excluding the most brilliant Living End, marvellous Eskimo Joe and splendid Powderfinger – all from Australia.

That’ll do for now. One entry is better than none, regardless of the content.

Ég flýði votlendi suð-vesturhornsins síðastliðið fimmtudagskvöld og brunaði í blíðuna norður á Akureyri. Hugsaði með mér að ég slyppi við mestu umferðina sem reyndist rétt (merkilegt að fleiri hugsi ekki á svipuðum nótum!). Þetta er búið að vera hið mesta sældarlíf og afslöppun, frábært að taka hlé frá tölvunum annað veifið. „Fjölskylduhátíðin„ fór að mestu fram hjá mér, enda áhuginn fremur takmarkaður fyrir þess háttar „menningaruppákomum„. Svefn[leysi] er svo annað mál, en hávaðinn og lætin eru víst óhjákvæmilegir fylgifiskar þessarar helgi. Úff.

Ég brá undir mig betri fætinum og rölti inn á Akureyrarvöllinn á sunnudagskvöldið til að kíkja á flugeldasýningu sem þar fór fram, og sneri heim reynslunni ríkari. Aldrei fara í sandölum á fjölskylduhátið! Ef þú missir ekki einhverjar tær, þá kemurður a. m. k. ekki með fótabúnaðinn í heilu lagi heim aftur. Svo tróð ég mér inn á King Arthur í kvöld með Jan og Halldóru. Þrátt fyrir svolítinn húmor á köflum fannst mér myndin vart þess verð að sjá hana. E. t. v. er ég orðinn svona gegnsýrður af gamla riddararómansinum – í það minnsta fannst mér þetta ekkert líkt því sem ég hef lesið í gegnum tíðina. ;)

Nú, svo tekur þrælahaldið vinnan við aftur á miðvikudag, en aftur reikna ég með að losna við mestu örtröðina annað kvöld. Spurning hvort að ég fjárfesti ekki í sundskýlu áður en ég legg af stað suður á bóginn…

Tæpir tveir mánuðir liðnir frá síðustu færslu… Skammarleg frammistaða, vægast sagt.
Ég sótti ökuskírteinið í júní, en síðan þá er ég búinn að keyra tvisvar í sæluna á Akureyri. Seinna skiptið var frábært, en þá kúgaði ég herra Jan og frú Halldóru til að grilla handa mér. Að sjálfsögðu lagði ég eitthvað til málsverðarinns, fáeina kartöflubáta à la Disi og rauðvínsflösku eða svo – en ekkert í líkingu við veisluna sem hjúin göldruðu fram! Stefni á að fara norður um helgina til að viðhalda grillinu þeirra – ómögulegt að láta það skemmast af notkunarleysi þarna!

Annars hef ég verið að skoða farsíma að undanförnu, en gamli Nokia 5210 síminn var orðinn heldur innhverfur – ef hann neitaði ekki einfaldlega að hafa samband við fólk, þá gerði hann sitt besta til að trufla samræðurnar með alls kyns effektum og aukahljóðum svo að vart skildist nokkurt orð. Eftir töluverðar vangaveltur, þá leist mér best á Nokia 7250i ellegar Ericson T630. Ég vafraði inn í Elko á Smáratorgi, en úrvalið var fremur takmarkað (þar fyrir utan voru verðin út í hött samanborið við aðra staði). Því næst smeygði ég mér inn í verslun Símannsí Smáralindinni, en þar fékkst ekki áðurnefndur Nokia sími, og verðið á Ericson var stjarnfræðilegt (ég efast um að ég gæti sagt töluna upphátt án þess að stafa hana). Voðafone var engu betri, en þeir virðast takmarka allt við eigið kerfi (jafnvel Microsoft eru ekki svo slæmir!). Á endanum fór ég inn í BT og keypti Ericson T630. Því munu næstu dagar eflaust fara í það að læra á vekjaraklukkuna og ámóta fídusa. Frábært græja – spurning hvort hann endist eins vel og lengi og gamli Nokia 5110 síminn minn.

Ég var búinn að steingleyma þessari síðu í látunum undanfarið. Það var ekki fyrr en ég sótti „favourites„ möppuna af þjóninum mínum fyrir norðan sem ég rambaði á þennan stað aftur.

Hvað sem því líður, þá áskotnaðist mér aftur vinna nýverið, en mér var sagt upp á Hard Rock í lok mars, ásamt þónokkrum öðrum, en nýráðinn framkvæmdastjóri (Elís Árnason, fyrrum Sjallaskrímsli) fékk vægt flog og skrúfaði hreinlega fyrir allt sem gerði staðinn frægann (eða ætti ég að segja alræmdan? Hrm!). 13. maí var hringt í mig og ég boðaður í viðtal á Kaffi Mílanó, þar ætlaði maður nokkur að hafa samband við mig. Þetta var svolítið draugalegt í fyrstu, en ég dreif mig á staðinn til að grennslast nánar um þetta. Þá kom í ljós að Miðlarann (auglýsingafyrirtæki) vantaði forritara til að sjá um viðhald og viðbætur á vefsíðu þeirra sem og gagnagrunni. Að sjálfsögðu var ég ánægður með að gera eitt af mínu helstu áhugamálum að lifibrauði, sem er vel.

Það virðast standa yfir stór-framkvæmdir víðast hvar hér fyrir sunnan – flutningur á heilu vegunum og niðurrif á húsum jafnt sem tönnum (ég dreif mig til tannlæknis, í öðrum orðum) eru daglegt brauð. Nú, svo styttist óðum í að ég geti tekið þátt í leiknum með hinum ökuþórum borgarinnar, en eftir langan „status quo„ er ég búinn að skila inn umsókn fyrir próftökuheimild til ríkislögreglustjórans. Því vil ég biðja þá er þykja annt um líf sitt að halda sig á gangstéttum ellegar innandyra á næstunni!