Jæja, þá er liðið tímakorn frá því að ég skrifaði hér síðast. Ég fékk nokkurra daga „aukavinnu“ í kornhlöðu Fóðurblöndunnar eftir að vatnsleiðsla sprakk og bleytti í slatta af mjöli (að moka flór er hörkustuð í samanburði við blautt sojamjöl!). Það var fínt á meðan það stóð, en svo þegar hreinsuninni var lokið reyndist þetta hið mesta letilíf (hundleiðinlegt að fá borgað fyrir að gera ekki neitt…).
Svo þreytti ég „prófið“ í salnum á Hard Rock Café síðastliðinn laugardag, held að ég hafi staðist það með ágætum. Að minnsta kosti kvartaði enginn, jafnvel þó ég hafi ruglast eitt skiptið þegar ég átti að teyma fólk að borði í reyklausa hlutanum, en heimtaði að það fylgdi mér yfir á reyksvæðið (talandi um að vaða villu og reyk, heh).

Þar fyrir utan er lítið um að vera, maður lætur einfaldlega hverjum degi nægja sínar þjáningar og ekkert um fram það. Stefni á ökuskólann fljótlega, svo maður geti skutlast norður við tækifæri – án þess að borga morðfjár í flug ellegar rútu.
Ég hneykslast enn á umferðar-ómenningunni hér í höfuðborginni, svo virðist sem stöðuljós séu ekki staðalbúnaður á bílum hér um slóðir; það, eða þá að fólk kann ekki að nota þau. Sikk-sakkað á milli akreina eins og menn eigi lífið að leysa, „svínað“ á, og svo framvegis.
Þó er þetta nú allt að minnka fyrir mínum augum, ég get að minnsta kosti ratað í Mjóddina, Árbæinn og jafnvel Grafarvoginn ef ég einbeiti mér. ;D

Bölv… vindrass er þetta annars.