Ég var búinn að steingleyma þessari síðu í látunum undanfarið. Það var ekki fyrr en ég sótti „favourites“ möppuna af þjóninum mínum fyrir norðan sem ég rambaði á þennan stað aftur.
Hvað sem því líður, þá áskotnaðist mér aftur vinna nýverið, en mér var sagt upp á Hard Rock í lok mars, ásamt þónokkrum öðrum, en nýráðinn framkvæmdastjóri (Elís Árnason, fyrrum Sjallaskrímsli) fékk vægt flog og skrúfaði hreinlega fyrir allt sem gerði staðinn frægann (eða ætti ég að segja alræmdan? Hrm!). 13. maí var hringt í mig og ég boðaður í viðtal á Kaffi Mílanó, þar ætlaði maður nokkur að hafa samband við mig. Þetta var svolítið draugalegt í fyrstu, en ég dreif mig á staðinn til að grennslast nánar um þetta. Þá kom í ljós að Miðlarann (auglýsingafyrirtæki) vantaði forritara til að sjá um viðhald og viðbætur á vefsíðu þeirra sem og gagnagrunni. Að sjálfsögðu var ég ánægður með að gera eitt af mínu helstu áhugamálum að lifibrauði, sem er vel.
Það virðast standa yfir stór-framkvæmdir víðast hvar hér fyrir sunnan – flutningur á heilu vegunum og niðurrif á húsum jafnt sem tönnum (ég dreif mig til tannlæknis, í öðrum orðum) eru daglegt brauð. Nú, svo styttist óðum í að ég geti tekið þátt í leiknum með hinum ökuþórum borgarinnar, en eftir langan „status quo“ er ég búinn að skila inn umsókn fyrir próftökuheimild til ríkislögreglustjórans. Því vil ég biðja þá er þykja annt um líf sitt að halda sig á gangstéttum ellegar innandyra á næstunni!