Humpty dumpty!
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Folk.is sarpurPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Tæpir tveir mánuðir liðnir frá síðustu færslu… Skammarleg frammistaða, vægast sagt.
Ég sótti ökuskírteinið í júní, en síðan þá er ég búinn að keyra tvisvar í sæluna á Akureyri. Seinna skiptið var frábært, en þá kúgaði ég herra Jan og frú Halldóru til að grilla handa mér. Að sjálfsögðu lagði ég eitthvað til málsverðarinns, fáeina kartöflubáta à la Disi og rauðvínsflösku eða svo – en ekkert í líkingu við veisluna sem hjúin göldruðu fram! Stefni á að fara norður um helgina til að viðhalda grillinu þeirra – ómögulegt að láta það skemmast af notkunarleysi þarna!
Annars hef ég verið að skoða farsíma að undanförnu, en gamli Nokia 5210 síminn var orðinn heldur innhverfur – ef hann neitaði ekki einfaldlega að hafa samband við fólk, þá gerði hann sitt besta til að trufla samræðurnar með alls kyns effektum og aukahljóðum svo að vart skildist nokkurt orð. Eftir töluverðar vangaveltur, þá leist mér best á Nokia 7250i ellegar Ericson T630. Ég vafraði inn í Elko á Smáratorgi, en úrvalið var fremur takmarkað (þar fyrir utan voru verðin út í hött samanborið við aðra staði). Því næst smeygði ég mér inn í verslun Símannsí Smáralindinni, en þar fékkst ekki áðurnefndur Nokia sími, og verðið á Ericson var stjarnfræðilegt (ég efast um að ég gæti sagt töluna upphátt án þess að stafa hana). Voðafone var engu betri, en þeir virðast takmarka allt við eigið kerfi (jafnvel Microsoft eru ekki svo slæmir!). Á endanum fór ég inn í BT og keypti Ericson T630. Því munu næstu dagar eflaust fara í það að læra á vekjaraklukkuna og ámóta fídusa. Frábært græja – spurning hvort hann endist eins vel og lengi og gamli Nokia 5110 síminn minn.