Hulda hefur verið að fara yfir grunnatriðin og helstu hugtökin varðandi tölvur, s. s. mælieiningar (bitar, bæti, kílóbæti, rið (Hertz), o. s. frv.), mismunandi gerðir tölva (heimilistölvur, lófatölvur, fartölvur…) og þar fram eftir götunum.
Einnig gerðum við stutt kynningarverkefni í Microsoft Word, en það fólst í því að skrifa stutta kynningu á sjálfum/ri sér og sníða (format) eftir alls kyns kúnstarinnar reglum.

Fram að þessu hef ég lítið lært, nema þá hversu hryllilega þýðingarnar á Windows XP or Office pakkanum hafa farið. Þó er þetta sérstök upplifun, aðeins að vinna á íslensku Windows kerfi. T. a. m. get ég nokkurn veginn ímyndað mér hvernig Arthur Dent hlýtur að hafa liðið þegar jörðinni var eytt og hann ferðaðist um alheiminn ásamt Marvin og félögum (The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy). Fremur framandi tilfinning, sumsé.

Næsta verkefni: skoðanakönnun og úrvinnsla svara í MS Excel.

Ciao!