Fyrirhuguð er för að Reykjum í Fnjóskadal í fyrramálið, stundvíslega klukkan níu. Áætlaður komutími aftur til Akureyrar er svo á milli 16 og 17 á föstudaginn.
Ef marka má dagskrána á Reykjum ætti þetta að verða skemmtilegt og áhugavert ferðalag. Ég geri ráð fyrir að þetta verði fremur líflegur tími, svo ekki sé meira sagt. Á dagskránni er minnst á dans um fræ, hugleiðslu og vinnu með tré. Hvað felst svo í þessu öllu saman er mér gersamlega hulin ráðgáta. Það eina sem ég er nokkuð öruggur um hvernig fer fram (og einnig þeir þættir sem mér líka best) eru hádegis- og kvöldmatur, miðdegiskaffi, svonefndur „frjáls tími„ og önnur ámóta hlé. Ef veður verður sæmilegt, þá vildi ég gjarnan fá mér góðan göngutúr um sveitina, en það er eitthvað sem hvergi er minnst á í dagskránni.
Ég tel að almennt ríki ánægja meðal muffara vegna þessarar ferðar, sem er vel.

Helgin ætti svo að vera afslöppuð og notaleg (sem er góð tilbreyting frá því að leika leigubílstjóra allan sólarhringinn). Ég reikna með að fara í afmæliskaffi til Jans og Halldóra, en hnátan sú verður tvítug á morgun. Til lukku með það!
Þar fyrir utan hef ég engin áform um helgina. Sjálfsagt endar það upp í rúmi með The Ultimate Hitchhiker’s Guide to the Galaxy, nema við Jan höldum áfram með Baldur’s Gate II, en með þessu áframhaldi (þ. e. a. s. óreglulegum og fáum spilatímum) gætum við hugsanlega klárað hann um það leyti sem skólar hefja störf sín í haust.

Ég vil mína pylsu í brauði, án sósu og meðlætis, með glasi af nýmjólk (má gjarnan vera volg, þó er það ekki svo áríðandi). Þó er undantekning á því, en ef ég kaupi pylsu í Borgarsölunni, þá er í lagi að hafa tómatsósu og hráan lauk með. ^_^