Aftur í bloggið!
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ég er sennilega með verri bloggurum ef litið er á hve sjaldan ég nota þetta verkfæri. Raunar lét ég þetta sitja á hakanum svo lengi af þeirri einföldu ástæðu að ég nennti hreinlega ekki að lagfæra ýmsar færslur (mér urðu á þau mistök að breyta töflum gagnagrunnsins í UTF-8, en það fer víst ekki sérlega vel með ISO-8859-1).
Hvað sem því líður, þá er ég hugsa um að reyna að taka upp þráðinn að nýju.
Það hefur ýmislegt gerst frá því ég skrifaði um stutta Reykjaferð mína með muffurum. Er langt var liðið á Menntasmiðjuönnina, fór ég í starfskynningu til Stefnu á Akureyri, og í kjölfar þess var mér boðin þar atvinna. Þar hef ég síðan alið manninn undanfarna sex mánuði, eða svo. Fyrir þá sem ekki þekkja til þessa fyrirtækis, þá er þetta ungt og al-akureyskt, og helsti starfsgeirinn er upplýsingatækni. Meðal verkefna Stefnu má nefna Moya, okkar eigið vefumsjónarkerfi, sem og Matartorg, umsjónarkerfi fyrir mötuneyti og dagvistanir skóla (með meiru).
Þar með rættist draumurinn um að vinna við forritun, og má ég líklega prísa mig sælann með það. Þó hef ég komist að því að sameining áhugamáls og atvinnu merkir alls ekki þá hamingju sem ég hafði ímyndað mér áður fyrr. Þegar ég kem heim að loknum vinnudegi, þá er áhuginn fyrir tölvunni orðinn fremur rýr. Þrátt fyrir það, þá fylgir starfinu nokkur fjölbreytni, og ég get í raun ekki kvartað. Mér líður vel þar sem ég er.
Í mars eignaðist ég mína fyrstu bifreið, af gerðinni Nissan Sunny Wagon. Þó hann sé kominn af léttasta skeiðinu, og þrátt fyrir mikla keyrslu, þá er ræfillinn búinn að reynast mér vel þessa mánuði sem við höfum átt saman. Raunar sveik mig bremsan farþegamegin að framan í vetur, að sjálfsögðu þegar hálkan var sem mest, en það tók mig ekki nema fáeinar U-beygjur og lítilsháttar stórsvig (án allra slysa!) til að jafna mig á því. Til dæmis um hversu magnað þetta getur orðið, þá var ég á leið í vinnu einn morguninn í vetur. Það var umtalsverð hálka (fyrir mig, í það minnsta, en ég ók um á gatslitnum heilsársdekkjum), og ég var á suðurleið eftir Glerárgötunni. Er ég kom að gatnamótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis (þar beygji ég venjulega upp), þá steig ég aðeins á bremsuna til að vera sæmilega öruggur í beygjunni, en það fór ekki betur en svo að bíllinn tók U-beygju, og áður en ég vissi af, var ég aftur á heimleið norður eftir Glerárgötunni! Þrátt fyrir þennan krók náði ég altént á réttum tíma í vinnu.
Ætli ég láti þetta ekki gott heita að sinni, en ég ætla að reyna að taka mig á og skrifa hérna örlítið oftar.