„Bolla, bolla„ er líklega orðum ofaukið, en því skal ekki neitað að á undanförnum mánuði hefur umtalsverð þyngdaraukning átt sér stað. Frá því að ég byrjaði á þessum Herbalife kúr, en síðan eru tæpar fimm vikur, hef ég bætt við mig tíu kílóum. Þó eru þessi „auka„ kíló enn ekki farinn að gera vart við sig að ráði, svo ég held ótrauður áfram! Þó er jú einhver breyting, því loksins fékk ég buxur í Dressmann sem passa mér – í öðru en svörtu! ;) Raunar er ég hræddur um að ég þurfi að endurnýja jakkafötin fljótlega, því það brast fremur óhugnanlega í þeim að jólamatnum loknum.

Annars hefur þetta verið mesti makindadagur; lítið um að vera í vinnunni, og svo er maður svo ferlega afslappaður eftir jólasteikurnar. Þetta er allt svo mikið einfaldara þegar enginn er að áreita mann eða skapa óþarft stress. :p