Það styttist óðfluga í áramótin. Hugsa sér, aðeins þessi vika, og svo ekki meiri vinna það sem eftir er ársins! ;) Mest langar mig til að fagna þessum tímamótum með furðulegum dansi upp á borðum í vinnunni, eða jafnvel með því að tæma húsnæðið af hverju því sem tengist tölvum á nokkurn hátt (starfsfólkið hugsanlega undanþegið). Spurning hvort að það yki nokkuð á vinsældirnar.

Ég hef verið sannkölluð ímynd letinnar þessa helgi, og naumast hreyft mig út úr húsi að nauðsynjalausu. Raunar fór ég á fætur fyrir allar aldir á jóladagsmorgunn, en jólasveinninn þurfti að skila af sér einum óvæntum pakka á meðan skynsamt fólk svaf enn værum blundi. Annars hefur þetta verið hin gamalkunna jóladagskrá: Borða, lesa, sofa. Þessi jólin bættist þó við áætlunina, en ég þurfti líka að spila Prince of Persia: The Two Thrones. Það jók álagið umtalsvert, en ég hugsa að ég hafi það af! Nú er ég hins vegar mættur fyrir allar aldir í vinnuna, og fremur en að nota þennan aukaklukkutíma í eitthvað skynsamlegt, ákvað ég að skrifa þetta í staðinn. Þeim sem er annt um starfið sitt ættu líklega ekki að taka mig til fyrirmyndar.

Jæja, þá ætla ég að athuga hvaða usla ég get valdið í dag!