Gleði, gleði!
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Þá er helgarfríið hafið, en mér var boðið frí eftir hádegi úr vinnunni, sem ég þáði að sjálfsögðu með þökkum! Það hefur ýmsa kosti í för, en þó ekki alveg án galla. Ég gerði ekki ráð fyrir fríinu, og því hafði ég skipulagt daginn eftir því, þ. e. a. s. að framkvæma öll innkaup og aðra snúninga í matartímanum. Þegar dagskráin riðlast svona, þá dett ég alveg úr sambandi og geri ekkert af því sem ég ætlaði mér í upphafi. Það kemur jú að því, en líklega ekki fyrr en rétt áður en verslanir og aðrir ámóta framandi staðir loka í dag og kvöld.
Ég brá undir mig betri fætinum á miðvikudagskvöldið, og leit inn á Kaffi Karólínu. Þar hafði ég mælt mér mót við Tryggva frænda, og leið ekki á löngu þar til að Tryggvi og frú mættu. Við ræddum m. a. um jólagjafir og LaTeX (ekki fataefnið!), lífið í landinu, og þar fram eftir götunum. Ekkert ákaflega spennandi er varðar þjóðaröryggi eða annað slíkt, bara ósköp frjálslegt og venjulegt spjall.
Annars hefur vikan verið ósköp venjuleg, og frávik frá hefðbundinni vinnuviku í lágmarki. Ég fann mér tíma til að halda örlítið áfram með Prince of Persia í gær, en nú er aðeins lokabardaginn eftir. Það er hinn stökkbreytti vesír sem ég á eftir að murka áður en ég get bjargað heimalandinu og lifað hamingjusamur þar til næsti leikur kemur.
Mér virðist þessi bardagi ætla að reyna meira á úthald og tækni fremur en heppni og hamagang eins og svo oft vill verða í svipuðum leikjum.
Jæja, kannski maður reyni að gera eitthvað af viti áður en allur dagurinn fer í vitleysu!
2. janúar 2006 kl. 9:39
Já takk fyrir spjallið! Og gleðilegt ár.
2. janúar 2006 kl. 13:46
Þakka sömuleiðis! Vá, ég þarf að laga leturstærðina á comment forminu.