Ég vaknaði á fremur ókristilegum tíma í morgun, fullviss þess að ég væri að verða of seinn í vinnu. Þá varð mér litið á klukkugarminn, en hún sýndi 5:40. Að sjálfsögðu ávítaði ég sjálfan mig fyrir uppátækið, barði höfðinu nokkrum sinnum við koddan, og steinsofnaði (spurning hvort það hafi eitthvað með ítrekuð höfuðhöggin að gera). Ég spratt síðan á fætur rétt um tíu, íhugaði alvarlega að vekja einhverja fleiri mér til ánægju og yndisauka, en letin varð ofan á. Hélt áfram með Harry Potter „fan-fiction„ sem ég byrjaði að lesa í gær, en rétt um 11-leytið skammaðist ég út í mjólkurbúðina alræmdu og fjárfesti í rauðvínsflösku fyrir kvöldið. Að meðmælum Palla varð Pata Negra Valdapenas Gran Reserva fyrir valinu. Miðað við lýsinguna er þetta einmitt eitthvað sem ætti að höfða til mín, en ég er meira gefinn fyrir þessu berjaríku vín, t. a. m. Peter Lehmann Cabernet Sauvignon. Skömmu upp úr hádegi fór ég síðan með Ingibjörgu og Halldór í flugeldaleiðangur. Mér brást öll sjálfsstjórn og endaði á því að kaupa væna „tertu„, kennda við Njál. Óttalegt bruðl, að sjálfsögðu, en þar sem ég hef ekki gert neitt af þessu í fleiri ár, þá er það kannski ekki svo slæmt. ;)

Nú, síðari hluta dags, hef ég haldið áfram með fyrrnefnda HP sögu, og hnýtt óteljandi bindishnúta. Mjamm, ég ákvað að það væri kominn tími til að læra þetta, og með aðstoð Google fann ég þetta. Mig grunaði ekki að þetta væri svona einfalt, og enn síður að mikillar æfingar væri þörf til að töfra fram sæmilega útlítandi bindishnút. Einhver ætti nú að sjá sóma sinn í að efna til námskeiðs fyrir svona flækjufætur eins og mig, það er svo leiðinlegt að biðja alltaf aðra um að hnýta fyrir sig bindið. :P

Þeir sem ætla að fikta við flugelda í kvöld bið ég um að gæta ýtrustu varkárni, það er svo ótrúlega auðvelt að slasa sig á þessu!

Gleðilegt nýtt ár, og kærar þakkir fyrir liðnar stundir!