janúar 2006


Í einhverju kastinu nýlega hóf ég lestur á bókaflokknum um Ísfólkið í 1,e+32 sinn. Á mínum yngri árum þegar ég var hvað harðastur Ísfólksaðdáandi kunni ég orðið ættartréð utanbókar, og svei mér ef ég var ekki hættur að lesa bækurnar, heldur fletti bara og leit á blaðsíðunúmerin! Að sjálfsögðu las ég einnig Galdrameistarann af sömu ákefð, og síðar Ríki ljóssins. Til marks um það hve mikill aðdáandi ég var, þá las ég að mig minnir síðustu fimm ef ekki sex bækurnar um ríki ljóssins á norsku, en þær voru aldrei þýddar. Ég held að það sé í eina skiptið sem ég hef verið þakklátur fyrir allar þjáningarnar er ég leið í dönskutímum í gamla daga.
Úff… Af hverju er sumarfríið bara einu sinni á ári, sérstaklega þegar það viðrar svona vel?

Nú hefur flugfélag í New York sett á laggirnar þjónustu þar sem fólk getur gefið upp ýmsar lýsandi upplýsingar um persónuleika sinn á netinu, sem síðar eru notaðar til að finna hinn fullkomna ferðafélaga. Þjónustan nefnist því skemmtilega nafni „AirTroductions„. Eigandinn að þessari óvenjulegu hugmynd fékk hana eftir að honum hafði hlotnast sæti við hlið ungfrú Texas. Tja, ég veit ekki um aðra, en ég tæki nú autt sæti við hlið mér framyfir olnboga í síðunni eða eyranu, en það fer að sjálfsögðu eftir hve hávaxinn viðkomandi er, og stanslaust fánýtt tal um ekki neitt.

Jæja, ég lét verða af því að fá mér „nýjan„ bíl í dag. Fyrir valinu varð beinskiptur Hyundai Elantra Station ’98. Gripurinn er í toppstandi og lítur bara virkilega vel út. Það eina sem er hugsanlega hægt að setja út á er hve mikið hann er ekinn, eða um 160. þús. Ég lít hins vegar þannig á að það sanni bara hve endingardrjúgur hann er, og hve fyrri eiganda hefur þótt vænt um hann. ;)

Það má segja að ævintýrið hafi byrjað þegar einn samstarfsmaður minn benti mér á annan bíl til sölu, en sá leit mjög vel út á þessari einu mynd sem við fundum á netinu. Ég ákvað að skoða gripinn, en þá kom í ljós að hann var umtalsvert klesstur að aftan, og farinn að ryðga svolítið í brotunum. Fyrst ég var á annað borð kominn af stað ákvað ég að líta á bílaumboð Toyota, og kom þar auga á Hyundainn. Eftir eins ýtarlega skoðun og við verður komið á svona stöðum, fannst mér ekkert annað til í dæminu en að kaupa greyið, sem var og fljótgert.

Nú er svo aðeins spurning hvað maður gerir við gamla Nissaninn; e. t. v. að reyna að lappa svolítið upp á hann og selja fyrir lítið, en á hinn bóginn er kannski best að setja hann í pressuna.

Föstudagur
Þá er ég búinn að sigra nýjasta leikinn í Prince of Persia seríunni í þriðja sinn, eða einu sinni á öllum erfiðleikastigum. Við Jan ákváðum að ljúka þessu í gær, en til marks um það hve gegnsýrðir við erum orðnir, þá vann Jan lokabardagann í fyrstu tilraun (í „Hard„), en hann hefur lítið sem ekkert spilað leikinn. Ég skammast mín svolítið.
Leit mín að Prince of Persia: The Warrior Within hefur borið lítinn sem engann árangur: Amazon.com sendir hann ekki út fyrir Bandaríkin, hjá Amazon.co.uk og Play.com er hann uppseldur, í BT fæst hann ekki og aðspurðir kváðust þeir ekki einu sinni getað pantað hann. Verst þykir mér að BT selur hina PoP leikina, þ. e. Sands of Time og The Two Thrones. Allt saman mjög grunsó, að hætti Krebinzky. Lesa meira af „Síðbúin helgarfærsla„

Í gær ákvað ég að skipta alfarið yfir í íslenskt viðmót á vefdagbókinni, en þýðingin var unnin af Binna. Fyrir WordPress og íslenskuáhugamenn mæli ég eindregið með að gægjast nokkuð reglulega í dagbókina hans, því karlinn er hinn ágætasti penni. Eitthvað mun þó vera eftir af enskum orðum og setningum hér og þar, en flest tengjast þau þá þemanu sem ég á eftir að yfirfara betur. Einnig fannst mér kominn tími til að skipta úr ISO-8859-1 stafasettinu yfir í UTF-8, en það gekk vitanlega ekki erfiðislaust fyrir sig. Þó fór svo að ég bjó mér til lítið hjálpartæki í PHP til að yfirfara allar dagbókarfærslur, og umbreyta þeim ef þær voru ekki vistaðar í UTF-8 sniði, en það tók mun skemmri tíma en ella.