Jæja, ég lét verða af því að fá mér „nýjan„ bíl í dag. Fyrir valinu varð beinskiptur Hyundai Elantra Station ’98. Gripurinn er í toppstandi og lítur bara virkilega vel út. Það eina sem er hugsanlega hægt að setja út á er hve mikið hann er ekinn, eða um 160. þús. Ég lít hins vegar þannig á að það sanni bara hve endingardrjúgur hann er, og hve fyrri eiganda hefur þótt vænt um hann. ;)

Það má segja að ævintýrið hafi byrjað þegar einn samstarfsmaður minn benti mér á annan bíl til sölu, en sá leit mjög vel út á þessari einu mynd sem við fundum á netinu. Ég ákvað að skoða gripinn, en þá kom í ljós að hann var umtalsvert klesstur að aftan, og farinn að ryðga svolítið í brotunum. Fyrst ég var á annað borð kominn af stað ákvað ég að líta á bílaumboð Toyota, og kom þar auga á Hyundainn. Eftir eins ýtarlega skoðun og við verður komið á svona stöðum, fannst mér ekkert annað til í dæminu en að kaupa greyið, sem var og fljótgert.

Nú er svo aðeins spurning hvað maður gerir við gamla Nissaninn; e. t. v. að reyna að lappa svolítið upp á hann og selja fyrir lítið, en á hinn bóginn er kannski best að setja hann í pressuna.