Síðbúin helgarfærsla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Föstudagur
Þá er ég búinn að sigra nýjasta leikinn í Prince of Persia seríunni í þriðja sinn, eða einu sinni á öllum erfiðleikastigum. Við Jan ákváðum að ljúka þessu í gær, en til marks um það hve gegnsýrðir við erum orðnir, þá vann Jan lokabardagann í fyrstu tilraun (í „Hard„), en hann hefur lítið sem ekkert spilað leikinn. Ég skammast mín svolítið.
Leit mín að Prince of Persia: The Warrior Within hefur borið lítinn sem engann árangur: Amazon.com sendir hann ekki út fyrir Bandaríkin, hjá Amazon.co.uk og Play.com er hann uppseldur, í BT fæst hann ekki og aðspurðir kváðust þeir ekki einu sinni getað pantað hann. Verst þykir mér að BT selur hina PoP leikina, þ. e. Sands of Time og The Two Thrones. Allt saman mjög grunsó, að hætti Krebinzky.
Mánudagur
Ég fór með bílinn í skoðun í síðustu viku. Það voru að sjálfsögðu stór mistök, því ég vissi mætavel að hann yrði stimplaður hættulegur jafnt sér sem öðrum í umferðinni. Raunar var fátt sett út á hann að undanskildum bremsum og öxulhosa farþegamegin, en það kom mér öllu meira á óvart. Ég fékk litla og krúttlega skærrauða miða á bílinn, og þ. a. l. akstursbann. Ég stalst þó til að keyra ræfilinn heim, og bíð nú þess að hann geri við sig sjálfur. Það er líklega eins gott að vera þolinmóður á svona dögum.
Á föstudagskvöldið fór ég út í skautahöll til að koma upp einhverju af búnaðinum fyrir sem var notaður daginn eftir til að dæma og halda utan um stig keppenda á íslandsmeistaramóti í listhlaupi. Áhugasamir geta kynnt sér ýmislegt um virkni þessa búnaðar í PDF skjali frá WIGE Innovation. Kaplarnir sem þessu fylgdu voru gríðarlega margir og langir; okkur hefði dugað 1/4 af leiðslunum ef mældar væru í metrum. Með nokkra tugi af svoleiðis snúrum getið þið svo ímyndað ykkur hve gaman var að tengja þær og ganga síðar frá öllu aftur. Annars gekk þetta fljótt fyrir sig, enda þrír um verkið, því rétt um klukkutíma síðar var allt komið upp nema aðaltækin, þ. e. a. s. fartölvur, snertiskjáir og annað slíkt. Þegar heim kom var ég orðinn svo spenntur vegna mótsins að ég sökkti mér niður í lestur og leiki um nóttina, og vissi ekki fyrr en ég átti að mæta aftur út í höll; laugardagsmorgunn kl. 8:00. Eftir svefnlausa nótt var ég alveg eiturhress, eins og gefur að skilja. :p
Þá tókum við upp afganginn af gripunum, tengdum og prófuðum, en allt reyndist í góðu lagi. Keppnin hófst, og ég hafði alveg frábært útsýni þarna við hlið dómaranna, og hvergi neinir „blindir„ blettir. Það eitt gerði allt umstangið vel þess virði, og rúmlega það. Dagurinn leið að mestu áfallalaust fyrir sig. Það komu upp minniháttar vandamál vegna þess að einhverjum hafði láðst að skilgreina einhver stökk fyrir keppnina í hugbúnaðinum, en það tafði einkunnagjöf lítið eitt. Allt fór þó vel fram, og fannst mér alveg aðdáunarvert hvað allt gekk vel fyrir sig þegar á heildina er litið. Úrslit mótsins voru svo þessi:
Novice
1. sæti: Sigrún Lind Sigurðardóttir (SA)
2. sæti: Dana Rut Gunnarsdóttir (SR)
3. sæti: Heiða Ósk Gunnarsdóttir (SR)
Junior
1. sæti: Íris Kara Heiðarsdóttir (SR)
2. sæti: Ásdís Rós Clark (SR)
3. sæti: Hildur Ómarsdóttir (SR)
Að keppni og frágangi loknum dreif ég mig heim, og við tók leikjasena með Jan. Við grófum upp Prince of Persia: The Warrior Within, og ég hélt út til 2 um aðfaranótt sunnudags. Við urðum varir óvenju marga og áhrifaríka galla í þessum leik, einn svo slæmur að við komumst hvorki eitt né neitt, heldur urðum að byrja aftur frá fyrri tímapunkti. Annar galli sem var nokkuð kynlegur var þegar prinsinn okkar umbreyttist í eitthvert furðukvikindi sem við sáum mun síðar hlaupa á undan okkur í leiknum, en heilsan féll stöðugt með hverri sekúndunni er leið.
Að lokum má þess til gamans geta að þessi færsla hefur verið í smíðum frá því um 6:30 á föstudagsmorgunn, 20. janúar. Geri aðrir betur!