febrúar 2006


Þá er ég búinn að uppfæra PHP á Vanaheim í nýjustu útgáfuna, 5.1.2. Fullt af lagfæringum og ýmsar betrumbætur þar. Þá bætti ég við CURL stuðningi, en einhvern veginn gleymdist það síðast þegar ég stillti PHP. Þá lækkaði ég hvíldartímann fyrir fopen() úr 60 sekúndum í 15, sem gerir það að verkum að óþarfa tafir við sókn upplýsinga frá öðrum netveitum (s. s. last.fm fyrir boxið „Í spilaranum“) eiga ekki að valda eins mikilli töf á birtingu vefdagbókarinnar.

Ferðin suður gekk átakalaust fyrir sig, allir útreikningar stóðust fyllilega, svo ég kom í hús í upphafi matartíma. Helgin var raunar ósköp róleg, en ýmsar áætlanir fóru algerlega út um þúfur. Föstudagur og laugardagur liðu því rólega hjá án nokkurra tíðina. Það sama verður ekki sagt um sunnudaginn…
Lesa meira af „Ferðaraunir“

Ég hef þær ánægjulegu fréttir að ég er búinn að fá nýja IP tölu og RDNS færslu fyrir hana, ns1.iceware.net. Starfsfólk OG Vodafone reyndist mér mjög vel, voru snöggir að svara og minnsta mál var að fá þessu breytt. Þetta hefur í för með sér að ég gat loks skráð nafnaþjón minn hjá ISNIC og get því tekið til vistunar .is lén. Þá uppfærði ég allt skylt efni, bæði hjá skráningaraðilum erlendis sem og stillingar á þjóninum.

Þá á ég bara eftir að henda einhverju lítilræði í tösku, skola af mér vinnurykið (maður rykfellur af því að sitja við tölvu allan daginn!), og aka af stað til höfuðborgarinnar. Meginástæða ferðarinnar er Íslandsmót barna og unglinga í listhlaupi, en slíkum viðburðum má ég alls ekki missa af. Þetta er orðin svipuð árátta og hjá öllum hinum með fótboltann. Þá heilsar maður að sjálfsögðu upp á vini og vandamenn, en dagskrá helgarinnar er ómótuð að öðru leyti.

Góða helgi!

Fleiri gagnslausir fítusar bættust við eftir skriftir mínar um AJAX á athugasemdum. Nú er t. d. hægt að endurraða boxunum til hægri með því að draga þau fram og til baka. Þeir sem kunnugir eru Google og Gmail munu eflast kannast ágætlega við þennan möguleika af vefsíðum þeirra. Ég á enn eftir að fínpússa þetta eitthvað, en ég efast um að þetta sé komið til að vera – engan veginn nógu gagnlegt til þess. ;) Lesa meira af „Óstöðvandi!“

Jæja, þá er víst óhætt að segja að ég sé genginn í þjónustu hins illa. Að gamni mínu bætti ég við AJAX stuðningi fyrir athugasemdir. Hvað græði ég á því? Alls ekki neitt! En þið, lesendur góðir? Tja, þið gætuð hugsanlega sparað ykkur niðurhal á fáeinum kílóbætum (þó allt þetta sé staðsett hér á Íslandi) þegar þið skráið athugasemdir. Hvernig? Ég mæli með að þið lesið færslu mína um AJAX til að fá frekari skýringar á því. Þetta er þó nokkuð vænt að því leytinu að ef af einhverjum ástæðum þið hafið gert JavaScript (og Active Scripting fyrir Internet Exploder notendur) óvirkt, eða þá að vafrinn einfaldlega styður það ekki, þá virkar gamla POST aðferðin ennþá. Já, og eitt enn! Ef þið smellið á sarp einhvers ársins, þá kemur upp listi af mánuðum þess árs, svo þið getið kafað örlítið dýpra. :D

Eftirfarandi síða »