Frá því að ég endurstillti logskrár Apache 29 nóv. 2005 til dagsins í dag hefur aukning í heimsóknum verið á þessa leið:

  • Einstakar heimsóknir hafa aukist um 384%
  • Fjöldi heimsókna hefur aukist um 314%
  • Skoðun síðna hefur aukist um 256%

Frá 29 nóvember 2005 til 31 desember voru algengustu:

  • Stýrikerfi: Linux (43%), MS Windows (34.7%)
  • Vafrar: Firefox (57%), MSIE (21.6%)
  • Þjóðerni: Bandaríkin, Ísland, Ástralía, Svíþjóð og Bretland

Frá 1 janúar 2006 til dagsins í dag voru algengustu:

  • Stýrikerfi: Windows (52.6%), Linux (26.6%)
  • Vafrar: MSIE (41.1%), Firefox (36.4%)
  • Þjóðerni: Ísland, Ástralía, Bandaríkin, Bretland

Að lokum má til gamans geta að algengustu leitarorðin sem drógu þennan vef upp innihéldu m. a. nafnið mitt sem og gælunöfnin Disi og Idle, AJAX, krossgáta og Ríki ljóssins. Einnig skal það tekið fram að heimsóknir leitarvéla og annarra sjálfvirkra tækja eru ekki innifalin í þessum tölum.