Jæja, þá er víst óhætt að segja að ég sé genginn í þjónustu hins illa. Að gamni mínu bætti ég við AJAX stuðningi fyrir athugasemdir. Hvað græði ég á því? Alls ekki neitt! En þið, lesendur góðir? Tja, þið gætuð hugsanlega sparað ykkur niðurhal á fáeinum kílóbætum (þó allt þetta sé staðsett hér á Íslandi) þegar þið skráið athugasemdir. Hvernig? Ég mæli með að þið lesið færslu mína um AJAX til að fá frekari skýringar á því. Þetta er þó nokkuð vænt að því leytinu að ef af einhverjum ástæðum þið hafið gert JavaScript (og Active Scripting fyrir Internet Exploder notendur) óvirkt, eða þá að vafrinn einfaldlega styður það ekki, þá virkar gamla POST aðferðin ennþá. Já, og eitt enn! Ef þið smellið á sarp einhvers ársins, þá kemur upp listi af mánuðum þess árs, svo þið getið kafað örlítið dýpra. :D