Fleiri gagnslausir fítusar bættust við eftir skriftir mínar um AJAX á athugasemdum. Nú er t. d. hægt að endurraða boxunum til hægri með því að draga þau fram og til baka. Þeir sem kunnugir eru Google og Gmail munu eflast kannast ágætlega við þennan möguleika af vefsíðum þeirra. Ég á enn eftir að fínpússa þetta eitthvað, en ég efast um að þetta sé komið til að vera – engan veginn nógu gagnlegt til þess. ;)

Þá er aftur spurning hvort maður reyni að notfæra sér þessa möguleika í vefstjórnarhlutanum. Þá væri t. d. hægt að endurraða efnisflokkunum á einfaldan „drag ‘n’ drop„ hátt, og upplýsingarnar uppfærðust jafnóðum fyrir tilstilli AJAX. Hins vegar hef ég aldrei fundið neina þörf hjá mér til að stokka upp efnisflokkunum í sífellu. :D