Ýmislegt á seyði
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ég hef þær ánægjulegu fréttir að ég er búinn að fá nýja IP tölu og RDNS færslu fyrir hana, ns1.iceware.net. Starfsfólk OG Vodafone reyndist mér mjög vel, voru snöggir að svara og minnsta mál var að fá þessu breytt. Þetta hefur í för með sér að ég gat loks skráð nafnaþjón minn hjá ISNIC og get því tekið til vistunar .is lén. Þá uppfærði ég allt skylt efni, bæði hjá skráningaraðilum erlendis sem og stillingar á þjóninum.
Þá á ég bara eftir að henda einhverju lítilræði í tösku, skola af mér vinnurykið (maður rykfellur af því að sitja við tölvu allan daginn!), og aka af stað til höfuðborgarinnar. Meginástæða ferðarinnar er Íslandsmót barna og unglinga í listhlaupi, en slíkum viðburðum má ég alls ekki missa af. Þetta er orðin svipuð árátta og hjá öllum hinum með fótboltann. Þá heilsar maður að sjálfsögðu upp á vini og vandamenn, en dagskrá helgarinnar er ómótuð að öðru leyti.
Góða helgi!