27. feb. 2006
PHP uppfærsla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir PHPPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Þá er ég búinn að uppfæra PHP á Vanaheim í nýjustu útgáfuna, 5.1.2. Fullt af lagfæringum og ýmsar betrumbætur þar. Þá bætti ég við CURL stuðningi, en einhvern veginn gleymdist það síðast þegar ég stillti PHP. Þá lækkaði ég hvíldartímann fyrir fopen() úr 60 sekúndum í 15, sem gerir það að verkum að óþarfa tafir við sókn upplýsinga frá öðrum netveitum (s. s. last.fm fyrir boxið „Í spilaranum„) eiga ekki að valda eins mikilli töf á birtingu vefdagbókarinnar.
Þessi færsla hefur verið lesin 658 sinnum