I reckon it is time for me to share some of my little hacks and tweaks with the rest of the world. Not as valuable nor sophisticated as many of the available plugins, but to me they are rather neat.
Mind you, this will require modifications of original WordPress files, and I absolutely won’t be held responsible for any troubles installing the following hacks may cause you. I may support them to some extent, however.
Lesa meira af „WordPress tweaks„
febrúar 2006
WordPress tweaks
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækni, WordPressPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Kaffiraunir
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Eftir umtalsvert annríki í hádeginu brunaði ég upp stigana í vinnuna. Mér fannst ég eiga góðan kaffisopa skilinn fyrir afkasta- og árangusríkt hádegi, svo leið mín lá beint til elskunnar minnar í eldhúsinu. Ég gældi svolítið við frúna áður en ég laumaði könnu undir froðuspenann,og innan skamms var ég kominn með hálfan bolla af freyðandi mjólk. Þá færði ég könnuna lítið eitt til, eða undir glóðvolga kaffispenana. Ég valdi mér hæfilegan skammt af kaffi, og kom ljúfunni af stað með blíðuhótum. En nei, ég var svikinn. Í stað ilmandi og nýlagaðs kaffi fékk ég ekki neitt! Vatnið var búið. Því vatnaði ég ljúfunni, og vongóður kom ég henni af stað aftur. Allt til einskis. Í þetta skiptið fékk ég hreint og ferskt vatn. Kaffibaunirnar voru uppurnar. Sár og leiður gaf ég henni ríkulega af baunum til að jórtra á, stillti könnunni enn einu sinni upp, minnkaði kaffiskammtinn og setti af stað. Og sjá! Ég fékk kaffi. Ekki meira en botnfylli í krúsina, en kaffi þó! Brúnaþungur sótti ég mér kaffirjóma og hellti saman við kaffið. Í stað rjóma fékk ég eitthvað mitt á milli smjörs og undanrennu. Vonbrigðin voru fullkomnuð.
Enn fleiri breytingar…
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækni, WordPressPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ég held ótrauður áfram í tilraunum mínum á WordPress. Í þetta skiptið bætti ég við fremur frumstæðum teljara sem telur hve oft hver færsla hefur verið lesin. Hann telur þó ekki nema þegar smellt er á sjálfa færsluna, og aðeins hjá gestum og gangandi. Það væri gróft svindl ef hann teldi mig með.
Þá er líka komin smá viðbót við gestabókina, en þökk sé ip2nation get ég fylgst nokkurn veginn með hverrar þjóðar eða a. m. k. hvaðan fólk kemur sem skrifar í gestabókina. Þá birtist lítið flagg með fána viðkomandi lands á undan nafni gestsins. Ég er líka búinn að setja upp kannanamódúlinn aftur. Ég met álit ykkar mikils, og því væri það ákaflega vel þegið ef þið eydduð fáeinum sekúndum í að segja ykkar skoðun hverju sinni.
Fimmtudagur, 23. janúar 2020
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir SkáldskapurPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
20:30. Ég geng áfram götuna, myrkrið leggst um mig líkt og huliðshjálmur. Þrjár ungar stelpur standa skvaldrandi við ljósastaur, bílarnir silast áfram sama hringinn fram og til baka, líkt og þeir gerðu fyrir 20 árum, og munu líklega gera um ókomna tíð. Lesa meira af „Fimmtudagur, 23. janúar 2020″
Smávægilegar breytingar
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ég ákvað að ganga skrefinu lengra í þessum uppfærslum á vefdagbókinni, en þar ber helst að nefna XHTML 1.0 Strict í stað Transitional samhæfni, og minniháttar JavaScript fyrir þá sem það hafa til að fela eða birta boxin til hægri á síðunum. Önnur viðbót er box titlað „Í spilaranum„. Þarna koma upp allt að fimm lög sem ég hef hlustað á nýlega, og listinn uppfærist með fimmtán mínútna millibili. Lesa meira af „Smávægilegar breytingar„