Þegar ég vaknaði í morgun eftir langa og erfiða nótt í DDO mundi ég eftir einhverju sem ég ætlaði að skrifa um. Þegar ég kom í vinnunna fékk ég hugmynd um aðra mögulega færslu. Nú, í hádegismatnum, er ég búinn að gleyma því öllu saman. Það var samt áreiðanlega eitthvað bráðfyndið.
Lesa meira af „Gleymni„
mars 2006
Gleymni
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Stíflan brostin
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Mér að óvörum birtist stúlka frá póstinum með pakka í hönd skömmu upp úr kvöldmat í kvöld. Pakkinn innihélt leikinn góða, einmitt þennan sem hefði ekki átt að koma fyrr en á morgun. Ég byrjaði fljótlega á að búa mér til bardagamann (fighter) að nafni Gäwén Geldar, og hef verið að dunda mér í leiknum síðan þá. Því lengur sem ég spila, því meira læri ég að meta hann (og þeim mun fleiri galla finn ég, illu heilli). Ég er ekki viss hvort pósturinn eigi skilið prik fyrir þetta eða ekki, svo ég hugsa að ég láti það liggja á milli hluta í bili.
Nú, svo kom á daginn að „The Emo O. C.„ hefur verið fjarlægt af vefsíðunni sem ég minntist á nýverið, en mér tókst að grafa upp afrit af þessum snilldarlega gerða þætti, og má nálgast hann hér.
Póststífla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Ég pantaði leikinn Dungeons and Dragons Online af vefsíðu BT í gærmorgun skömmu fyrir sjö. Fljótlega upp úr tíu fyrir hádegi var staðan á pöntuninni „sent„. Vel á minnst, þá finnst mér vefverslun BT alveg skelfileg, engar tilkynningar, staðfestingar eða útprentanlegar kvittanir við pantanir. Af minni alrómuðu bjartsýni gerði ég mér vonir um að fá leikinn í hendurnar síðari hluta dags, en að sjálfsögðu gekk það ekki eftir. Það er hins vegar allt í sómanum, því ég hefði aldrei lagt út í að panta leik sem ég hefði hæglega getað sótt sjálfur á fimm mínútum ef mér væri ekki nokkuð sama um dags bið eða svo. Þá hvarflaði að mér að ég gæti náð í pakkann á pósthúsið í dag, en hringdi þangað fyrst til vonar og vara. Samtalið við afgreiðslumanninn var á þessa leið:
„Góðan dag. Getur þú sagt mér hvort pakki til Sigurðar Hannessonar í Hafnarstræti 86a á Akureyri sé kominn?„
„Jú, hann var póstlagður á Akureyri í gær, en vegna slæms veðurs og ófærðar á Norðurlandi kemst hann ekki í flokkun og útburð fyrr en á morgun.„
„Takk fyrir.„
Ha? Manngreyið hefði allt eins getað haldið á pakkanum þegar hann fór að tala um slæmt veður og ófærð (fyrir mig er um þriggja mínútna gangur út á pósthús). Ekki þurfa þau að flokka póstinn utandyra, eða hvað? Komast bílarnir þeirra e. t. v. ekki í gegnum 10 sentimetra snjó? Nægir fimm hundruð metra skyggni kannski ekki til að þeir sem sinna útkeyrslunni komist leiða sinna? Ég hef ekki vanist öðru en að bréf og bögglar sem ég hef farið með snemma dægurs í póst hér innan Akureyrar berist til viðtakanda samdægurs, svo mér finnst þetta blátt áfram asnalegt svar. Annars hef ég engar áhyggjur af þessu, ég hlýt að fá þetta með vorinu þegar snjóa tekur að leysa.
D&D Online
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Ég hef verið í umtalsverðum leikjahugleiðingum að undanförnu, eða síðan ég lauk við Shadows of Undrentide aukapakkann fyrir Neverwinter Nights. Fátt virðist koma til greina annað en almennilegur AD&D leikur, eða D&D ef í harðbakkana slær. Þar sem enn er svolítill spölur í land hvað Neverwinter Nights II varðar, þá er ekki ýkja margt í boði, nema þá D&D Online. Stærsta „turn-off„ leiksins er að þetta er MMORPG, þ. e. a. s. hlutverkaleikur fyrir netverja en ekki aðra saklausa leikmenn sem vilja dunda sér við þetta í faðmi tölvunnar án utanaðkomandi truflana. Lesa meira af „D&D Online„
Anti-O. C.
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir GlensPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Jæja, líklega er and-O. C. full-djúpt í árina tekið, því jafnvel ég sem óþreytandi O. C. áhorfandi hafði lúmskt gaman af háðinu. Emmy vísaði mér á þetta spott um helgina, en ég kom því hins vegar ekki í verk fyrr en nú að deila því með öllum hinum.
Um er að ræða þátt um helstu persónur O. C. þáttaraðarinnar vinsælu, unglingadrama eins og það gerist best, gerðan og leikinn af þremur strákum. The Ultimate O. C. Spoof
Bætum svo við stuttri lýsingu á skiptingu skoðana varðandi fuglaflensuna: Fuglaflensan er ekkert grín!