Ég hef verið í umtalsverðum leikjahugleiðingum að undanförnu, eða síðan ég lauk við Shadows of Undrentide aukapakkann fyrir Neverwinter Nights. Fátt virðist koma til greina annað en almennilegur AD&D leikur, eða D&D ef í harðbakkana slær. Þar sem enn er svolítill spölur í land hvað Neverwinter Nights II varðar, þá er ekki ýkja margt í boði, nema þá D&D Online. Stærsta „turn-off„ leiksins er að þetta er MMORPG, þ. e. a. s. hlutverkaleikur fyrir netverja en ekki aðra saklausa leikmenn sem vilja dunda sér við þetta í faðmi tölvunnar án utanaðkomandi truflana.
Leikurinn er þó nokkuð aðlaðandi hvað varðar grafík, söguþráðurinn er, tja, heldur slitróttur, og full-mikið hefur verið lagt upp úr að fylgja D&D reglunum og með því að endurskapa allar þær tilfinningar sem fylgja sönnum D&D skemmtunum með blað og blýant í hönd. Þá hefur mér skilist að umtalsvert magn af hnökrum leynist víða, t. a. m. á leikurinn til að „krassa„ og skilja menn eftir með sárt ennið, vanhugsaðar gildrur ræna menn öllum styrk sem þeir geta aldrei endurheimt (með 0 í styrk er ekki einu sinni hægt að opna kistu, hvað þá meira), og þar fram eftir götunum. Svo er heimurinn náttúrlega tilbúinn að öllu leyti og aðlagar sig á engan hátt að hópum spilara (um sömu þrautir er að ræða hvort sem flakkað er um einn eða í stærri hópum), „level cap„ er skelfilega lágt, eða aðeins 10 (sem nægir til u. þ. b. einnar viku spilunnar áður en hámarki hæfileika og styrks er náð), og svo mætti lengi telja. Já, svo ekki sé minnst á áskriftarkerfið, en spilarar verða að borga ákveðið gjald til að taka þátt í leiknum.

En, í ljósi þess hve úrval (A)D&D leikja er fábrotið þessa dagana, þá hef ég samt látið til leiðast og pantað leikinn. Með honum fylgir mánaðaráskrift, en mér hefur skilist að mögulegt sé að treina sér allar þrautirnar og hvað eina í allt að tvær vikur. Flott er, þá ætti ég að geta klárað leikinn bæði sem Wizard og Fighter á þeim tíma sem manni er úthlutað í upphafi! ;)

Annars hef ég verið að fikta í öðrum aukapakka Neverwinter Nights, Hordes of the Underdark. Upprunalegi leikurinn var frábær að flestu leyti, en aukapakkarnir hafa ekki reynst mér vel. Þvert á móti finnast mér þeir aðeins vera endurtekningar með örlítið frábrugðnum leiktjöldum, ef svo mætti að orði komast. En sökum þess hve óspennandi aukapakkinn er eftir að hafa lokið við fyrsta leikinn gengur það mjög hægt, og því finnst mér tímabært að leita á náðir annarra tímaþjófa um sinn. ;)