Póststífla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Ég pantaði leikinn Dungeons and Dragons Online af vefsíðu BT í gærmorgun skömmu fyrir sjö. Fljótlega upp úr tíu fyrir hádegi var staðan á pöntuninni „sent„. Vel á minnst, þá finnst mér vefverslun BT alveg skelfileg, engar tilkynningar, staðfestingar eða útprentanlegar kvittanir við pantanir. Af minni alrómuðu bjartsýni gerði ég mér vonir um að fá leikinn í hendurnar síðari hluta dags, en að sjálfsögðu gekk það ekki eftir. Það er hins vegar allt í sómanum, því ég hefði aldrei lagt út í að panta leik sem ég hefði hæglega getað sótt sjálfur á fimm mínútum ef mér væri ekki nokkuð sama um dags bið eða svo. Þá hvarflaði að mér að ég gæti náð í pakkann á pósthúsið í dag, en hringdi þangað fyrst til vonar og vara. Samtalið við afgreiðslumanninn var á þessa leið:
„Góðan dag. Getur þú sagt mér hvort pakki til Sigurðar Hannessonar í Hafnarstræti 86a á Akureyri sé kominn?„
„Jú, hann var póstlagður á Akureyri í gær, en vegna slæms veðurs og ófærðar á Norðurlandi kemst hann ekki í flokkun og útburð fyrr en á morgun.„
„Takk fyrir.„
Ha? Manngreyið hefði allt eins getað haldið á pakkanum þegar hann fór að tala um slæmt veður og ófærð (fyrir mig er um þriggja mínútna gangur út á pósthús). Ekki þurfa þau að flokka póstinn utandyra, eða hvað? Komast bílarnir þeirra e. t. v. ekki í gegnum 10 sentimetra snjó? Nægir fimm hundruð metra skyggni kannski ekki til að þeir sem sinna útkeyrslunni komist leiða sinna? Ég hef ekki vanist öðru en að bréf og bögglar sem ég hef farið með snemma dægurs í póst hér innan Akureyrar berist til viðtakanda samdægurs, svo mér finnst þetta blátt áfram asnalegt svar. Annars hef ég engar áhyggjur af þessu, ég hlýt að fá þetta með vorinu þegar snjóa tekur að leysa.
29. mars 2006 kl. 10:26
Pósturinn er til alls vís