Þegar ég vaknaði í morgun eftir langa og erfiða nótt í DDO mundi ég eftir einhverju sem ég ætlaði að skrifa um. Þegar ég kom í vinnunna fékk ég hugmynd um aðra mögulega færslu. Nú, í hádegismatnum, er ég búinn að gleyma því öllu saman. Það var samt áreiðanlega eitthvað bráðfyndið. ;)

Ég lét undan þrýstingi Jans í gær og prófaði að tengja þriðju tölvuna við straum. Helst af öllu óttaðist ég að rafkerfið stæði ekki undir okinu og allt færi til fjandans, en nei, þetta slapp til. Þó gekk þetta ekki alveg áfallalaust fyrir sig, því í fyrstu kom engin mynd á skjáinn, heldur blikkaði aðeins ljósið á skjánum. Ég vissi að skjárinn væri í fínu lagi, því hann var áður tengdur við vefþjóninn, svo mér fannst fátt koma til greina en bilað skjákort. Mig minnti að ég hefði smellt gamla GeForce FX5200 kortinu í vélina, en á daginn kom að um enn eldra MX420 var að ræða, sem reyndist ónýtt í þokkabót. Þá uppgötvaði ég að ég hafði af einhverjum óskiljanlegum ástæðum sett FX kortið í vefþjóninn! Jæja, burt með kortið, notum innbyggða kortið (nForce 2 móðurborð með 64 MB MX420 ef ég man rétt) í staðinn. Það gekk eftir, og klukkutíma síðar var vélin uppsett og tilbúin til leikjaspilunar. Í örvæntingu okkar ákváðum við að reyna að spila DDO með aðeins innbyggða skjákortið að vopni. Leikurinn var settur upp, og Jan skráði sig inn á leikjaþjóninn. Þetta gekk það vel að við spiluðum leikinn langt fram á nótt. Fighterinn minn nálgast annað „level„ eða stig, en vegna þess að engin reynslustig fást fyrir dráp og annað slíkt gengur hækkunin mun hægar fyrir sig. :p

Nýlega var ég beðinn um að athuga veðurspána á netinu, en ég vissi nokkurn veginn hvernig langtímaspáin hljómaði. Svar mitt var á þá leið að „Ja, það er bara sama skítaveðrið framundan„, en jafnframt ritaði ég slóðina www.skitavedur.is í vafrann – í stað slóðarinnar á veðurkort Morgunblaðsins. Mér fer greinilega ekki að tala og skrifa samtímis. ;)

Ég gekk frá skattframtalinu í gær með aðstoð Gunnars Karlssonar, skattstjóra umdæmisins. Á daginn kom meðal annars að ég hef farið fremur illa út úr viðskiptum ársins 2005, a. m. k. hvað varðar skattamálin. Þrátt fyrir áfallið var ákveðinn léttir að geta loksins lokið þessu. Ég er sérstaklega þakklátur Gunnari fyrir hjálpina, ef hans hefði ekki notið við hefði ég sennilega ekki getað skilað þessu frá mér. Svo fór skautaprinsessan mín hún Ingibjörg suður á bóginn í gær, og áfram til Svíþjóðar í dag, hvorki meira né minna. Þar keppir hún í listhlaupi á skautum, en mér tókst ekki að grafa upp um hvaða mót væri að ræða. Hún kemur svo aftur heim fáeinum dögum fyrir fermingardaginn sinn, svo það verður líklega í nógu að snúast hjá stúlkunni.
Að öðru leyti er þetta fremur tíðindalaust tímabil – nema ég sé að gleyma einhverju. ;)