Dugnaður og leti
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Venju fremur hefur helgin verið á rólegri nótunum. Ég gerði ekkert á föstudaginn, og jafnvel enn minna í gær! Í morgun tók ég mig þó á og dreif mig á fætur um átta.
Eftir reglulega tilburði við að koma mér í gang í morgun, skrapp ég út og tók bensín, þvoði bílinn, og aftur heim. Eftir smá kaffisopa heima við ákvað ég svo að fjárfesta í nýjum þurrkublöðum á bílinn. Brunaði að verslun Skeljungs, og gleymdi hvað ég ætlaði að biðja um. Þess í stað ákvað ég að snurfusa bílinn lítillega að innan, og keypti af því tilefni einhvern sérstakan úða til að „fægja„ greyið með. Eftir svolitla tiltekt og þrif (skolaði meira að segja af gúmmímottunum!) mundi ég eftir þurrkublöðunum, og fór því af stað í þriðja sinn. Nú fékk ég þurrkublöðin, og afgreiðslumaðurinn var meira að segja svo vinsamlegur að setja þau á fyrir mig (meiri silkihúfan sem ég er að verða…). Þá reif ég Jan á fætur til að bjóða mér í kaffi, og eftir smá heitapottsspjall yfir kaffinu fór ég aftur heim. Fyrir um hálftíma var ég svo vinsamlegast beðinn um að aka út að Þelamerkurskóla og sækja Halldór bróður. Gamla settið var á leiðinni út í Ólafsfjörð í jarðarför, svo ég fæ að hafa Halldór yfir nótt í staðinn.
Eftir þennan feykilega dugnað ætla ég hins vegar að halda áfram að slaka á og gera ekki neitt, eða alveg þar til Jan fær útivistarleyfi frá konunni og við getum tekið upp þráðinn í DDO að nýju.