apríl 2006


Hljómsveitin Upplyfting lék fyrir dansi á Vélsmiðjunni á föstudag og laugardag, og að sjálfsögðu lét ég það ekki fram hjá mér fara. Þeim tókst að skapa alveg furðu mikla stemmningu þarna, og flestir sem ekki bráu fyrir sig betri fætinum tóku að minnsta kosti þátt í söngnum. Talandi um söng, þá fá þeir ekki sérlega háa einkunn fyrir hann, en kímnigáfan hækkar þá verulega upp í staðinn. ;)
Við Jan litum aðeins á DDO á föstudaginn og endurtókum meðal annars Waterworks ævintýrið. Reyndum líka aðra þraut þar sem þarf að drepa 200 kobolds og a. m. k. einn troglodyte – í einu. Það væri í sök sér ef þetta kæmi í smá hópum, en tveir þriðja stigs bardagamenn mega sín ekki mikils gagnvart svona her.

Í öðrum fréttum kveðst forsætisráðherra Hollands vera fremur leiðinlegur. Það er vissulega meira en margir aðrir myndu nokkurn tímann játa upp á sig. :D

Yankee Doodle went to town,
a-riding on his mother.
Every time he hit a bump
he had another brother.

Fátt markvert hefur gerst hjá mér undanfarna daga og jafnvel vikur. Rólegir dagar í vinnunni og enn rólegri stundir heima fyrir, þó með fáeinum heimsóknum í Vélsmiðjuna til að hlusta á misgóðar hljómsveitir. Þessi vika má kallast ónýt í vinnunni. Fólk er rétt komið úr páskafríi til að vinna í tvo daga og fara svo aftur í frí, vinna þriðja daginn og þá er komin helgi. Ég leit á nýju íbúðina í Smárahlíðinni í gær, og þó hún sé ágæt í flesta staði er staðsetningin að sjálfsögðu hörmuleg. Flutningarnir munu fara fram í mestu rólegheitum, svo það eina sem ég hef svolitlar áhyggjur af er tíminn sem flutningurinn á símanum muni taka, en ég treysti bara á að þeir sem eiga vefi og annað í hýsingu hjá mér taki því með jafnaðargeði. ;) Lesa meira af „Ládeyðutímar„

Þar sem ég hef ekki undan við að skrá helstu atburði jafnóðum og þeir gerast um þessar mundir, kemur hér ein „fortíðarfærsla„ til viðbótar. ;)

Það lifnaði umtalsvert yfir verkefnastöðunni í þessari viku, en þó hefur mér aldrei tekist að vera eins lengi fjarverandi vinnu á eins fáum dögum (að undanskildum veikindadögunum fyrr á árinu). Raunar hugsa ég að ég hafi aldrei eytt eins miklum tíma í bönkum og í þessari viku heldur. Lesa meira af „Enn ein fortíðarfærslan„

Með tölvupósti barst mér eftirfarandi skrýtla frá góðkunningja mínum Val í dag. Ég mæli eindregið með þessum!

George Bush og Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna eru að tala saman… Lesa meira af „Bush húmor„