maí 2006


Ég tek mér stutt hlé frá frekari skrifum vegna nýliðinna atburða og meiðsla. Í smíðum er nánari lýsing á atburðum þeim er áttu sér stað á Uppstigningardaginn 25. maí.

Í leiðinni vil ég koma á framfæri þökkum til allra þeirra er sýnt hafa okkur hlýhug og aðstoðað í kjölfar þessarar fremur óhugnanlegu reynslu.

Á vef Morgunblaðsins gefur að líta fyrirsögnina „Sjálfstæðisflokkur með hreinan meirihluta í Kópavogi samkvæmt könnun“. Það er nú gott að þeir séu ekki óhreinir.

Vinsamlegast hafið í huga við lestur þessarar færslu að ekki er víst að allir skilji kímnina sem í henni felst. Líklegt er að fyndnin skili sér einungis til hlutfallslega lítils hóps, þá einkum fólks úr tölvuheimum.

Lesa meira af „Heldri hundaeigendur“

Julian Beever er áhugaverður listamaður. Meðal verka hans eru olíumyndir á striga, veggmyndir, og myndir á strætum ýmissa borga. Þær síðastnefndu finnast mér ekki hvað síst skemmtilegar, því margar þeirra birtast aðeins rétt frá einu ákveðnu sjónarhorni. Einnig er dýptin slík að engu líkara er en þarna sé raunveruleg sundlaug eða ósvikin kókflaska liggjandi á miðri götunni. Lesa meira af „Götulist“

Flestir kannast líklega við þessa ergilegu tilfinningu þegar einhver lagstúfur hljómar stöðugt í kollinum, án þess að geta komið heiti eða flytjanda lagsins fyrir sig. Lesa meira af „Lagabank(ar)inn“

Eftirfarandi síða »