Valur var svo vinsamlegur að benda mér á villu mína þegar ég talaði um fjöllin Hraundranga nýverið. Svo virðist sem þetta sé alls ekki óalgengur misskilningur, því í þeim bókmenntum sem ég hef lesið, hefur jafnan verið farið fögrum orðum um hina tígullegu Hraundranga – í fleirtölu.

Þegar upp er staðið heitir undrið Drangafjall, en þegar gengið er norður eftir fjallshryggnum er komið að ófærum miklum er liggja að Kistu, og henni næst rís Hraundrangi. Til að bæta gráu ofan á svart, er Hraundrangur ósjaldan nefndur Hrauntindur.
En nöfn fjalla og fugla hafa heldur aldrei átt greiða leið í kollinn á mér, og þykir mér býsna gott að geta greint á milli þrastar og starra, Hraundrangs og Kistu. ;)