Jæja, þá er sumarleyfið formlega hafið, og ég búinn að losa mig undan flestum skyldum og kvöðum. Ætlunin er að taka því rólega um helgina, bregða mér í stutta heimsókn til höfuðborgarinnar, og að öllu óbreyttu ökutúr um Austfirðina og nágrenni. Hmm, og rétt í þessu lofaði ég mér til Sauðárkróks á sunnudaginn… Það er einmitt þetta sem ég á við þegar ég segi að áætlanir og ég eigum enga samleið. Rólega helgin breytist líklega í tölvuleiki og útiveru, og bíltúr í lengri kantinum á sunnudaginn.

Hvað sem því líður, góða helgi!