Íþróttaumfjöllun fjölmiðla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Rétt í þessu rakst ég á umfjöllun Morgunblaðsins um Bangsamót Bjarnarins, en fréttinni fylgir einnig stutt myndskeið af dansinum. Mig langar til að óska fréttamönnum blaðsins til hamingju og hrósa þeim fyrir þetta framtak, þar sem umfjöllun um listhlaup á skautum í fjölmiðlum er ósköp fátíð. Raunar finnst mér þó furðulega til valið, þar sem Bangsamótið er sennilega sambærilegast pollamótum í fótbolta, en þetta er þó spor í rétta átt. Vikudagur hefur venjulega imprað á stærri viðburðum í heimi listskautara, eða í það minnsta birt úrslit ísknattleika. Mörg ár eru liðin frá því er ég hætti að fylgjast með sjónvarpi, svo ég veit ekki svo gjörla hvernig staðan er þar, en býst þó við að hún sé fremur svipuð.
Því er það að í blöðum fjölmiðla eru fleiri heilsíður undirlagðar af úrslitum fót-, hand- og körfuknattleikja, frjálsíþróttamótum, og þar fram eftir götunum, en aldrei eða afar sjaldan minnst á listdans á skautum? Ef það er vegna þess að fylgjendur þessarra íþrótta eru mun fleiri en áhugafólk um skautaíþróttir, er þá ekki verið að mismuna fólkinu í landinu að ákveðnu leyti? Ég kæri mig ekki hið minnsta um fréttir af 22 mönnum að rífast um sama boltann á einhverjum grasvelli úti í heimi, og mér stendur á sama þó meistaralið okkar í handknattleik hafi sigrað lið Búlgaríu eða hverrar þjóðar sem er. Mér stendur líka nokkurn veginn á sama um skítkastið og undanbrögðin í stjórnmálum, fjárdrátt og svik silkihúfanna, slúðrið um fræga fólkið, og svo framvegis.
Að sjálfsögðu eiga þessar umfjallanir fullan rétt á sér, en mætti hugsanlega stytta þær lítið eitt til að koma öðrum greinum á framfæri, til að mynda um listdans, hvort heldur sem hann fer fram á skautasvellum eður ei? Mér er sama þó vinamótum og þess háttar sé sleppt, og greinarnar þurfa heldur ekki að vera langar. Minnst á sigurvegara mótanna, ef til vill stutt lýsing á helstu atriðum er skara fram úr – ekki svo ósvipað og í öðrum íþróttum.
Ég geri mitt ýtrasta til að sjá að minnsta kosti öll mót er Ingibjörg keppir á, og ekki einungis fyrir hana, heldur og vegna þess að mér finnst þetta falleg íþrótt sem ég vil gjarnan fylgjast betur með. En stundum bjóða aðstæður ekki upp á þann munað að ferðast um landið (eða jafnvel út fyrir landsteinana) til að sjá þessa viðburði, og þá væri einkar ánægjulegt að geta lesið um stöðu mála í blöðum.
Nú má segja að skautavertíðinni sé lokið í bili, og hefst hún ekki aftur af fullum krafti fyrr en í haust. Þá þætti mér ákaflega vænt um að fá að fylgjast með henni á prenti. Ég skal jafnvel gerast áskrifandi að Morgunblaðinu, ef ég aðeins fæ þessa litlu ósk uppfyllta! Ef ég hefði tímann og væri nógu góður penni til starfans myndi ég jafnvel bjóða fram krafta mína til að skrifa stutta pistla um þessa atburði.
21. maí 2006 kl. 23:19
[...] Ekki alls fyrir löngu skrifaði ég örlítið um hve ég hef saknað frétta af ýmsum íþróttum í fjölmiðlum, þó fyrst og fremst listdansi (á skautum og án), og jafnvel ofurlítið ísknattleiks. Ég gekk raunar það langt að breyta pistlinum lítið eitt og sendi svo sem bréf til Morgunblaðsins. Bréfið var svo birt í dag, sem kom mér þægilega á óvart. Skömmu síðar rakst ég svo á stutta en greinargóða lýsingu á sigri Svía á Tékkum í íshokkí á vef Morgunblaðsins. [...]