Held ekki. Á vef MyHeritage.com má finna býsna áhugavert veftól, nokkurs konar andlitsskanna sem les helstu sérkenni úr andlitum manna og ber þau saman við einkenni ýmissa frægra persóna, til að mynda leikara og söngvara. Ég hlóð upp þriggja ára gamalli mynd af mér í passamyndastærð, þá líktist ég meðal annars…… Hayden Christensen (58%), William Shatner (56%), Bela Lugosi (53%) og George Clooney (52%). Jú, ef grant er skoðað með opnu hugarfari og svolitlu ímyndunarafli, má ef til vill sjá einhver sameiginleg eða svipuð einkenni þarna. Síðar prófaði ég enn eldri mynd, eða líklega í kringum fimm ára gamla. Niðurstöðurnar voru fjarri því að vera þær sömu, því Seann William Scott (54%) var eini karlmaðurinn sem kom upp.
Á meðal kvenna sem ég líktist á þessum ævafornum myndum má nefna: Victoria Beckham (61%), Jennifer Love Hewitt (55%), og Mischa Barton (50%). Þess má reyndar geta að samanlagt komu upp fleiri myndir af konum en körlum. Hvort það eigi rætur sínar að rekja til kvenlegs andlitsfalls, eða yfirgnæfandi meirihluta kvenstjarna, veit ég hvorki né þori að fara með.
16. maí 2006 kl. 9:55
Þetta er nokkuð merkilegt tól, ég prófaði t.d. að setja mynd af nokkurra mánaða barni og það komu engin „hit„ enda er geómetría barnsaldlits alls ólík flestum andlitum.
Svo er líka áhugaverð „kenning„ um að andlit sem eru nær norminu (normið verandi meðaltal margra andlita t.d. með morph) eru metinn fallegri en hin.
16. maí 2006 kl. 10:26
Þess vegna hef ég aldrei getað skilið hvers vegna fólk segir alltaf hverjum nýburar líkjast. :p
Þessa norm kenningu kannast ég eitthvað við, en hvar ég hef heyrt um hana áður veit ég ekki. Veist þú einhver nánari skil á henni?
16. maí 2006 kl. 11:50
Í fljótu bragði finn ég ekkert um þetta nema:
http://en.wikipedia.org/wiki/Physical_attractiveness#Prototypicality_as_beauty
Væntanlega hægt að vaða í gegnum ProQuest með leitarorðunum „Prototype„ og „Beauty„ jafnvel henda inn „Social Psychology„ þetta er í einhverri skræðunni minni heima…
25. júní 2007 kl. 14:50
[...] að lesa gamla færslu og ákvað að rifja upp kynni mín af MyHeritage.com með nýrri ljósmynd. Meðal annars komu [...]