Julian Beever er áhugaverður listamaður. Meðal verka hans eru olíumyndir á striga, veggmyndir, og myndir á strætum ýmissa borga. Þær síðastnefndu finnast mér ekki hvað síst skemmtilegar, því margar þeirra birtast aðeins rétt frá einu ákveðnu sjónarhorni. Einnig er dýptin slík að engu líkara er en þarna sé raunveruleg sundlaug eða ósvikin kókflaska liggjandi á miðri götunni.

Væri ekki nær að fá einhvern listamanninn til að skreyta miðbæ Akureyrar með sannri list, í stað þess að grafa síki og rífa hús? Ég hugsa að ekki einungis yrði það mun ódýrara, heldur og skemmtilegra í alla staði. ;)