Flestir kannast líklega við þessa ergilegu tilfinningu þegar einhver lagstúfur hljómar stöðugt í kollinum, án þess að geta komið heiti eða flytjanda lagsins fyrir sig.

Ég rakst á býsna merkilega vefsíðu sem er einmitt ætlað að leysa þetta mál á einfaldan og skemmtilegan hátt. Á vef Song Tapper nægir að slá takt eða hrynjandi lagsins á bil takka lyklaborðsins, einn sláttur fyrir hvert sungið atkvæði, og þegar því er lokið, er leitað í mikilfenglegum gagnagrunni að sambærilegum lögum. Ég hef ekki prófað þetta að ráði, en þegar ég sló takt Klukknahljóms, stakk Song Tapper umsvifalaust upp á laginu Jingle Bells – sem er að sjálfsögðu hárrétt.