24. maí 2006
Heldri hundaeigendur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir GlensPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Vinsamlegast hafið í huga við lestur þessarar færslu að ekki er víst að allir skilji kímnina sem í henni felst. Líklegt er að fyndnin skili sér einungis til hlutfallslega lítils hóps, þá einkum fólks úr tölvuheimum.
Á fréttavef Reuters rakst ég á stuttan pistil um könnun er gerð var á hópi hundaeigenda í Bretlandi, um gæði og næringarríki fæði þeirra samanborið við hundana. Önnur málsgrein hefst á orðunum „A study of 1,337 British dog owners„, eða „Könnun sem framkvæmd var á 1,337 breskum hundaeigendum„.
Spurt er: Voru hundaeigendurnir „1337″ (e. leet, elite), í merkingunni „heldri„, eða voru þeir þetta margir? Illu heilli neyðist ég líklega til að samþykkja þetta sem fjölda aðspurðra vegna kommunar.
Þessi færsla hefur verið lesin 2.881 sinni