Ég ákvað að taka mig til og uppfæra eitthvað af hugbúnaðinum á vefþjóninum. Raunar tók ég aðeins til í leiðinni, endurskrifaði svæðisskrána fyrir aðallénið, iceware.net, bjó mér til sniðmát fyrir AWStats, og ýmislegt fleira. En sjálfar uppfærslurnar verða líklega að teljast til meiriháttar aðgerða. ;)

Sjálfan vefþjóninn, Apache HTTPD uppfærði ég úr útgáfu 2.0.54 í 2.2.2. MySQL gagnaþjóninn uppfærði ég úr 4.1.14 í 5.0.18, og síðast en ekki síst, PHP 5.1.2 í 5.1.4. Verkið gekk ekki alveg hnökralaust fyrir sig, einkum vegna þess að ég byrjaði á öfugum enda. Fyrir vikið þurfti ég að byggja PHP tvisvar sinnum, en hefði ég byrjað á MySQL uppfærslunni hefði ég losnað við aukaskrefið. Hugsunarleysi eins og það gerist verst.
Þá hef ég líka yfirfarið ruslpóstsíurnar aðeins, og í kjölfarið hefur magn slíks óhroða sem berst pósthólfum notendanna minnkað til muna.

Á næstu dögum ætla ég mér svo að uppfæra Linux kjarnann, en útgáfa 2.6.17 var nýlega kynnt.