Mér finnst ég hafa setið með sveitt ennið frá því í lok maí. Ja, líklega ekki setið svo mikið, en það er heldur ekki mergur málsins.
Síðasta ævintýrinu lauk rétt í þessu, en hófst í gær þegar ég ætlaði að setja Slackware upp að nýju á aðal tölvunni hér heima, Asgard. Það gekk að sjálfsögðu með eindæmum vel, eða alveg þangað til að mér datt í hug að ræsa hana aftur upp í Windows. Þá hætti innbyggða netkortið skyndilega að virka í XP, þó svo það stæði sig með eindæmum vel í Slackware. Það endaði með því að ég krækti í annað netkort og setti það í vélina, en innbyggða kortið er líklega orðið *nix-only eftir að það áttaði sig á yfirburðum Slackware.
Nú, svo er mitt langþráða „sumarfrí„ hafið, og engin vinna framundan hjá Stefnu fyrr en 10. júlí. Ég sé þó ekki fram á að verja miklum tíma í afslöppun, ferðalög eða hvers kyns vitleysu er jafnan tengist sumarleyfum af þessu tagi.
Ég fékk vistfangið mitt afskráð úr gagnagrunnum SORBS um daginn, en hún villtist þangað vegna þess að uppruni póstsins virðist vera mail.iceware.net, en PTR færslan segir aftur á móti ns1.iceware.net. Smá misskilningur sem reyndist einfalt og fljótlegt að leiðrétta. Þá leiðrétti ég líka SpamAssassin stillingarnar á Vanaheim, svo sérlega grófum ruslpósti er umsvifalaust hafnað eða eytt – í stað þess að honum sé sleppt í gegn án nokkurra athugasemda.
27. júlí 2006 kl. 2:28
Hva….Á ekki að skella sér í ferðalag drengur ? Hvurslags er þetta !
27. júlí 2006 kl. 19:53
Ekki strax, að minnsta kosti. Ýmislegt annað hefur forgang um þessar mundir.