júlí 2006


This one’s for the geeks out there. It is a short poem written in PHP, by Martin Alterisio. He describes it thus:

A sad poem of an algorithm where solitude brought excessive use of cpu cycles and memory allocation for redundant data (it copied over and over again the same image till all memory was filled with it)

Lesa meira af „Sad PHP poem“

Vefdagbókin keyrir nú á nýjustu útgáfu WordPress, og ég hef tekið saman meirihlutann af mínum kóða í kerfinu og komið fyrir í sérstakri skrá til að auðvelda mér uppfærslurnar í framtíðinni (diff og patch er ágætt í hófi). Þar að auki tók ég mig til og bætti við fáeinum prófum til viðbótar í gestabókina til að sporna gegn ruslsendingum, til að mynda Akismet. Þá er bara að bíða og sjá hvort þetta virki nú ekki allt eins og það á að gera. ;)

Tónleikahaldið á Dalvík nýliðinn föstudag fór ekki eftir upphaflegri áætlun, en fór þó allt vel að lokum. Íslendingarnir kunnu vel að meta tilbreytinguna frá glymskröttum og plötusnúðum, en pólsku dömurnar aðhylltust þó skífuþeyting og bassadrunur. Ferðinni lauk að sjálfsögðu í Sólheimum þar sem ég tók lítið eitt til hendinni, en þó ekki fyrr en að stuttri og settlegri veislu lokinni. Lesa meira af „Aftur á Akureyri“

Aðeins eftir að skipta um tvo strengi, útbúa létta og skemmtilega dagskrá, og ég er tilbúinn í slaginn! Í síðustu heimsókn minni til Dalvíkur var ég plataður til að koma fram og skemmta gestum þorpskránnar með gítarleik og þess háttar villimennsku. Lesa meira af „Sex strengja…“