Sex strengja…
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Aðeins eftir að skipta um tvo strengi, útbúa létta og skemmtilega dagskrá, og ég er tilbúinn í slaginn! Í síðustu heimsókn minni til Dalvíkur var ég plataður til að koma fram og skemmta gestum þorpskránnar með gítarleik og þess háttar villimennsku.Það skemmtilegasta við Dalvík er að segja: „Ég ætla í Bakaríið, elskan!„, og fá sér svo einn bjór á kránni sem ber þetta áhugaverða heiti. Hvað sem snilli Dalvíkinga í nafnavali líður, þá hefst fjörið kl. 18:00 á morgun, föstudaginn 28. júlí. Staða söngvara er enn laus.
Annars er skemmst frá því að segja að störfum mínum í þágu Stefnu ehf er lokið. Þær fregnir bárust mér í miðju sumarleyfinu er ég var kallaður á fund til að ræða næstu verkefni. „Hlálegt, en þó satt,„ svo ég vitni í meistara Megas. Þá tók ég upp á þeirri vitleysu að ana til Dalvíkur til að aðstoða kunningja við endurbyggingu hússins Sólheima. Ég hef þegar eytt umtalsverðum tíma þar, og meðal þess sem ég hef tekið mér fyrir hendur eru múrbrot, smíðar, flísalagnir o. fl. Því skal ekki neitað að þetta er kærkomin tilbreyting frá skrifstofuhandtökunum, svo ekki sé minnst á alla þekkinguna sem ég hef viðað að mér í þessum efnum.
28. júlí 2006 kl. 15:00
Tja, barir á Dalvík hafa nú lengi verið með frumleg nöfn. Lúbarinn var til dæmis lengi lókallinn þarna og fer engum sögum af ofbeldisglæpum á þeim tíma.
Gangi þér annars vel með skemmtunina!
28. júlí 2006 kl. 15:04
Ahh, Lúbarinn var á Dalvík! Já, það er víst eins með Bakaríið, það fer ekki mörgum sögum af bakstri og brauðgerð þaðan heldur.
Takk fyrir, því eitthvað segir mér að mér muni ekki veita af töluverðri heppni (eða nógu fullum áheyrendum).
30. júlí 2006 kl. 0:37
Öllum til ama og leiðinda það kvöldið