Tónleikahaldið á Dalvík nýliðinn föstudag fór ekki eftir upphaflegri áætlun, en fór þó allt vel að lokum. Íslendingarnir kunnu vel að meta tilbreytinguna frá glymskröttum og plötusnúðum, en pólsku dömurnar aðhylltust þó skífuþeyting og bassadrunur. Ferðinni lauk að sjálfsögðu í Sólheimum þar sem ég tók lítið eitt til hendinni, en þó ekki fyrr en að stuttri og settlegri veislu lokinni.
Síðan þá hef ég að mestu legið í leti eða lesið í A Clash of Kings eftir George R. R. Martin. Næst á dagskrá er að uppfæra vefdagbókina, en ég er þegar tveimur útgáfum á eftir. Refsivert kæruleysi og ekkert annað.