ágúst 2006


Ég rakst á áhugavert myndband á vefnum kvikmynd.is fyrr í dag. Um er að ræða smá hrekk sem gekk þó heldur langt – í orðsins fyllstu merkingu!

Sjá myndband.

Bush-finger
You and me, outside, now!

Þá er ég kominn heim eftir fimm daga dvöl og þrotlausa skemmtun í höfuðborginni. Við runnum inn fyrir bæjarmörkin skömmu fyrir miðnætti í gær, en ferðin var ósköp tíðindasnauð. Sjálf dvölin samanstóð raunar fyrst og fremst af búðarápi og heimsóknum, ásamt stuttri bíóferð og snöggri flugeldasýningu á menningarnótt. Lesa meira af „Flakkarinn“

Ég ætla að leggja land undir dekk á morgun, og bregða mér til Reykjavíkur. Ætlunin er að staldra við til föstudags, og sleppa þannig við hina rómuðu menningarnótt. Nú eru þó farnar að renna á mig tvær grímur… Lesa meira af „Menningarnótt og hársnyrting“

Nýlega tók ég eftir galla í birtingu vefdagbókarinnar í IE vöfrum. Lesendur sem nota IE (og eru komnir í meirihluta á ný, mér til mikillar hrellingar!) hafa eflaust velt vöngum yfir því hve stórir og klunnalegir tenglarnir til vinstri voru orðnir, og tóku ekki einu sinni við sér þegar músin var færð yfir (breyttur bakgrunnslitur og músarbendill), nema þegar bendillinn var færður yfir sjálfan textann. Ég er enginn CSS gúru, og því reyndist mér þetta fremur hvimleitt vandamál. Í hverju hinn raunverulegi vandi felst hef ég ekki hugmynd um, en með örlitlu fikti tókst mér að leysa þetta á einfaldan hátt. Lesa meira af „Furðulegt fyrirbæri“

Eftirfarandi síða »