Nýlega tók ég eftir galla í birtingu vefdagbókarinnar í IE vöfrum. Lesendur sem nota IE (og eru komnir í meirihluta á ný, mér til mikillar hrellingar!) hafa eflaust velt vöngum yfir því hve stórir og klunnalegir tenglarnir til vinstri voru orðnir, og tóku ekki einu sinni við sér þegar músin var færð yfir (breyttur bakgrunnslitur og músarbendill), nema þegar bendillinn var færður yfir sjálfan textann. Ég er enginn CSS gúru, og því reyndist mér þetta fremur hvimleitt vandamál. Í hverju hinn raunverulegi vandi felst hef ég ekki hugmynd um, en með örlitlu fikti tókst mér að leysa þetta á einfaldan hátt.

IE viðbót:
* html #sidebar a { text-decoration: none; border: none; border-bottom: 1px solid #eee; display: block; height: 50%; }

Fyrri línan er hins vegar svona:
#sidebar ul li a { text-decoration: none; border: none; border-bottom: 1px solid #eee; display: block; }

Því má segja að IE lausnin sé aðeins „height: 50%;„ viðbótin, en hvers vegna svo er, er mér ómöguleg að átta mig á. Ef einhver getur sagt mér hvers vegna þetta er, og jafnvel komið með betri lausn, væri það ákaflega vel þegið. :)