Ég ætla að leggja land undir dekk á morgun, og bregða mér til Reykjavíkur. Ætlunin er að staldra við til föstudags, og sleppa þannig við hina rómuðu menningarnótt. Nú eru þó farnar að renna á mig tvær grímur…
Því ekki að athuga menninguna fyrst ég verð þarna á annað borð? Ég lét mig hafa það einu sinni, og sá alls ekki eftir því. En það kemur allt í ljós þegar nær helginni dregur. Ef til vill geta einhverjir bent mér á eitthvað sérlega áhugavert í boði um menningarkvöldið, og þannig reynt að sannfæra mig um að lengri dvöl í höfuðborginni væri alls ekki sem verst? ;)

Annars brá ég mér á hársnyrtistofuna Passion í gær, og léttist umtalsvert eftir að mesti „lubbinn„ var horfinn. Raunar léttist pyngjan enn meira, en mér virðist sem herraklippingin hækki um fáeina hundraðkarla mánuð hvern. Í maí borgaði ég 2.600 kr., júní var 2.750 kr. og nú síðast 2.900 kr. Mér finnst þetta að sjálfsögðu fremur leitt, þar sem ég treysti fáum öðrum en Sigurkarli til að hafa hendur í hári mér. Hver ástæðan er fyrir þessum hækkunum get ég ekki ímyndað mér, en á meðan hryðjuverkum, gengishruni og olíuskorti verður ekki kennt um, get ég sennilega sætt mig við þetta.