Þá er ég kominn heim eftir fimm daga dvöl og þrotlausa skemmtun í höfuðborginni. Við runnum inn fyrir bæjarmörkin skömmu fyrir miðnætti í gær, en ferðin var ósköp tíðindasnauð. Sjálf dvölin samanstóð raunar fyrst og fremst af búðarápi og heimsóknum, ásamt stuttri bíóferð og snöggri flugeldasýningu á menningarnótt.

Kollu tókst að sannfæra mig um að líta í bíó með sér á föstudagskvöldið, og fyrir valinu varð Pirates of the Caribbean: Dead Man’s Chest. Ekki alveg eins góð og The Curse of the Black Pearl að mínu mati, en frábær skemmtun engu að síður. Sagan var frumleg, fyndnin látlaus, sömu furðulegu persónurnar, og sum bardagaatriðin voru alveg frábærlega sviðsett. Ég held að allir ættu að sjá þessa. ;)

Á laugardeginum ætluðum við svo að troðast í Kolaportið, eða „Land hins skelfilega fnyks„, en sökum maraþonhlaupa, vegaframkvæmda og dagskrár menningarnætur, varð ekkert úr því. Eftir að hafa eytt nærri klukkutíma í bílalestum og bið eftir gangandi vegfarendum gáfumst við upp og drifum okkur í heimsókn í vesturbæinn. Einhvern tímann fórum við líka í Kringluna, en þar komst ég yfir Icewind Dale safnið fyrir lítið fé.
Við snáfuðum svo aftur í Breiðholtið, en þá töfruðu mamma og Jóhannes fram frábæran mat á báðum vígstöðvum (eldhús og grill), en ég hafði sæmilega stjórn á mér í þetta sinn, og gat því staðið upp hjálparlaust eftir átið.
Um kvöldið fórum við svo aftur út til að fylgjast með flugeldasýningunni, en í þetta sinn var skotið frá varðskipinu Ægi, rétt fyrir utan Sæbrautina. Sýningin var fremur daufleg og lítið í hana varið, og eftir stutta göngu um bæinn héldum við heim á ný.

Sunnudagurinn hófst með misheppnaðri tilraun til þrifa á bílnum sem endaði á þvottastöð Esso í Kópavoginum, en við fundum svo aðra þar sem ég versla venjulega eldsneyti í Breiðholtinu… D’oh! Ég engdist og skalf á meðan ég horfði á misþyrmingar á ræfils bílnum mínum, og að þvotti loknum baðst ég margfaldrar afsökunar og lofaði bót og betrun. Tryllitækið flagnaði lítið eitt á spegilhorninu bílstjóramegin, en þar skín nú í hvít bein.